Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Árið 2020 setti fjölskyldusvið Fjarðabyggðar af stað verkefni með það að markmiði að samþætta betur þjónustu við börn með því að einfalda og flýta fyrir aðstoð til nemenda og foreldra og veita starfsfólki- fræðslu- og frístundastofnana stuðning. Stuðningurinn var veittur af teymi sem starfaði þvert á þjónustustofnanir. Verkefnið sem fékk heitið „Sprettur“ var sett á laggirnar á grunni áherslna stjórnvalda um aukna samþættingu í félagsþjónustu sem fram koma í nýlegum lögum nr. 86/2021. Í ritgerðinni koma fram niðurstöður ferlismats (e. process evaluation) þar sem metið var hvernig gengur hefur að starfrækja verkefnið og hversu vel framkvæmd þess samræmist upphaflegri áætlun. Ferlismat getur verið mikilvægt tæki við framþróun verkefna af þessu tagi. Við matið voru notuð fyrirliggjandi gögn ásamt því að gögnum var safnað með viðtölum og viðhorfskönnun. Niðurstöður leiddu í ljós að framkvæmdin var ekki að öllu leyti í samræmi við upphaflega áætlun. Þrátt fyrir það voru þjónustunotendur almennt ánægðir með verkefnið og gögn verkefnisins benda til að með hinu nýja verklagi hafi náðst að efla samþættingu á þjónustu og draga úr fjölda alvarlegri mála. Á grunni niðurstaðna eru settar fram ábendingar um lagfæringar og áframhaldandi þróun.
Source: Skemman
Author: Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Public Administration
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062339807
