Tengsl notkunar ytra oxýtósíns í fæðingu við þróun einhverfu og ADHD barna: Kerfisbundin fræðileg samantekt
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Notkun ytra oxýtósíns í fæðingarþjónustu fer vaxandi á heimsvísu, en lyfið er meðal annars notað við framköllun fæðingar og til hríðaörvunar í fæðingu. Hormónið og taugaboðefnið oxýtósín gegnir mikilvægu hlutverki í barneignarferlinu en tilbúið ytra oxýtósín getur dregið úr margþættum jákvæðum áhrifum náttúrulegs innra oxýtósíns. Vísbendingar eru um tengsl á milli notkunar ytra oxýtósíns í fæðingu og þróunar á einhverfu og ADHD barna. \nMarkmið og tilgangur: Að samþætta niðurstöður rannsókna sem skoða tengsl notkunar ytra oxýtósíns í fæðingu við þróun einhverfu og ADHD barna og styðja við upplýst val kvenna um notkun inngripsins. \nAðferð: Kerfisbundin fræðileg samantekt megindlegra rannsókna. Stuðst var við leiðbeiningar Joanna Briggs stofnunarinnar við gerð samantektar ásamt PRISMA yfirlýsingarinnar. Rannsóknarspurning var mótuð og inntöku- og útilokunarskilyrði skilgreind. Heimildaleit var framkvæmd í gagnasöfnum PubMed, CINAHL, PsycInfo og ProQuest og gerð var afturvirk og framvirk snjóboltaleit úr greinum sem uppfylltu inntökuskilyrði. Viðeigandi matstæki frá Joanna Briggs stofnuninni voru notuð til að meta gæði þeirra rannsókna sem uppfylltu inntökuskilyrði. Helstu upplýsingar hverrar rannsóknar voru settar fram með „matrix“-aðferð. Niðurstöður rannsóknanna voru samþættar með lóðréttri gagnagreiningu. \nNiðurstöður: Alls voru 12 rannsóknir sem uppfylltu inntökuskilyrði samantekar. Fimm af átta rannsóknum (62,5%) sýndu einhver tengsl á milli notkunar ytra oxýtósíns í fæðingu og þróunar á einhverfu barna en þau reyndust vera sterkari hjá drengjum. Tvær af fimm rannsóknum (40%) sýndu einhver tengsl á milli notkunar ytra oxýtósíns í fæðingu og þróunar á ADHD barna. \nÁlyktun: Niðurstöður þessar þarf að meta til móts við ávinning af notkun ytra oxýtósíns. Þær gefa mögulega ástæðu til að endurskoða þá miklu notkun sem er á lyfinu í fæðingarþjónustu hérlendis sem og erlendis. Til að stuðla að upplýstri ákvarðanatöku er mikilvægt að veita foreldrum fræðslu um möguleg langvarandi áhrif lyfsins á taugaþroska barna, einkum með tilliti til þróunar á einhverfu. Þörf er á frekari rannsóknum á viðfangsefninu. \nLykilorð: Oxýtósín, ytra oxýtósín, fæðing, einhverfa, ADHD, ljósmóðurfræði
Source: Skemman
Author: Ragnheiður Ragnarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Endocrine and Autonomic Systems
Field: Neuroscience
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062357322
