Work

Ummah in the North Atlantic: The community of Muslims in Iceland

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð fjallar um samfélag múslíma á Íslandi, innbyrðis tengsl þess sem og samskipti \nvið íslenskt þjóðfélag og stofnanir þess. Staða þessa samfélags er sett í sögulegt og pólitískt \nsamhengi og einkum þá orðræðu sem varð áberandi eftir 11. September 2001, þar sem \nviðhorf Vesturlanda til múslíma, íslam og hins svokallaða múslímska heims, tóku í vaxandi \nmæli á sig neikvæðan blæ. Þetta lýsti sér m.a. í aukinni andúð gegn múslímum í vestrænum \nríkjum, þar sem hugtakið íslamófóbía varð áberandi í opinberri orðræðu. Hið fámenna \nsamfélag múslíma á Íslandi hefur ekki farið varhluta af þessari orðræðu, en hún varð samt \nfyrst áberandi í kjölfarið á úthlutun lóðar til moskubyggingar, en fyrir þann tíma höfðu and múslímsk viðhorf á Íslandi fyrst og fremst verið innflutt erlendis frá, þar sem ekki var hægt \nað heimfæra þessi viðhorf til atvika á Íslandi. Fram að úthlutun lóðarinnar var samfélag \nmúslíma á Íslandi nær ósýnilegt og þess vegna þurfti að flytja neikvæða umfjöllun erlendis \nfrá og tengja þá neikvæðni múslímum á Íslandi. \nMegin markmið ritgerðarinnar er að sýna fram á stöðu samfélags múslíma á Íslandi útfrá \nþeirra eigin sjónarhóli og setja hana í hnattrænt, sögulegt og pólitískt samhengi og greina frá \nfélagslegum, menningarlegum og trúarlegum þáttum í því samhengi. Rannsóknin byggir á \netnógrafískri þáttökuaðferð, opnum viðtölum og óformlegum samræðum á vettvangi, sem \nog á fjölmiðlarýni og opinberri orðræðu um þennan þjóðfélagshóp á Íslandi. Helstu \nkenningalegu áherslur snúa að félagslegum og menningarlegum margbreytileika, \nsamskiptum minnihlutahópa við meirihlutasamfélagið og um skörum margbreytilegra \nsjálfumleika í flóknu félagslegu og menningarlegu umhverfi. \n Í ritgerðinni skoða ég skipulag hins múslímska samfélags á Íslandi, trúfélög og þann \nstarfa sem þar á sér stað og samskipti þessara félaga innbyrðis. Ég greini frá samskiptum \nþessara trúfélaga við nokkrar íslenskar stofnanir tengdar ríkinu, og þar sést að samfélag \nmúslíma á Íslandi er í töluvert miklum formlegum og óformlegum samskiptum við bæði \nveraldlegar og trúarlegar stofnanir og félög. Ég beini sjónum að því hvað það felur í sér að \nvera múslími, hvað múslímskur sjálfumleiki er, með orðum þátttakenda minna, og hvernig \nsá þáttur skarast við sjálfumleika tengda þjóðerni, uppruna og margskonar menningarlegum \nþáttum. Ég geri grein fyrir trúarlegum orðræðum meðal þátttakenda minna, trúarlegu \náhrifavaldi í eins fámennu trúarlegu samfélagi eins og á Íslandi, sem og trúarlegum \nathöfnum, sem höfundur tók þátt í. Spurt er hvort hægt sé að tala um eitthvað sérstakt \níslenskt íslam en samkvæmt athugunum höfundar og ummæla þátttakenda er það ekki \ntilfellið. Hluti af umræðunni um trúarlega sjálfsmynd er um íslenska trúskiptinga, Íslendinga \nsem hafa tekið íslamstrú og um hverskonar félagsleg og menningarleg umskipti það felur í \nsér. Einnig er varpað ljósi á menningarlega og félagslega þætti sem snúa bæði að íslensku \nþjóðfélagi og félagslegum og trúarlegum hefðum múslíma og íslam, sem hefur margvíslegar \nbirtingarmyndir. \nAð lokum er fjallað um orðræður og umræður sem urðu áberandi í íslensku samfélagi, \neinkum meðal opinberra aðila úr stjórnmálum og fjölmiðlaheimi. Þar lýsi ég og greini \nfjölmiðlaumræðu í kjölfar moskumálsins svokallaða, í kjölfar úthlutunar lóðar fyrir mosku í \nReykjavík 2013, sem varð áberandi um skeið, þar sem and-múslímskum hugmyndum og \nviðhorfum var gefið vind undir vængi, sem var í fyrsta sinn sem íslamófóbía byggðist á \ninnlendum atburðum og aðstæðum, en áður höfðu slíkar hugmyndir einkum verið \nendurunnar úr erlendri umræðu, einkum frá miðlum á Norðurlöndum. Þessi orðræða mótaði \nákveðnar neikvæðar staðalímyndir um múslíma og íslam, sem stönguðust á við sjálfsskilning \nmúslímanna sjálfra, það sem kalla má baráttuna um sjálfumleikann. Af þessu má sjá að þessi \nritgerð fjallar að miklu leyti um sjálfumleika múslíma á Íslandi og baráttu þeirra við að fá að \nvera það sem þeir eru, ekki það sem aðrir ákveða að þeir séu. Þetta er sett í sögulegt og \npólitískt samhengi, þar sem oríentalískir undirtónar um „okkur“ og „hina“ eru nær alltaf til \nstaðar, og hvernig það birtist á margvíslegan hátt í hinum flóknu samskiptum múslíma á \nÍslandi, bæði innan samfélags þeirra sem og við samfélagið „fyrir utan“. Þessi samskipti eru \nmargvísleg, ekki bara neikvæð, en tortryggni í garð múslíma ristir samt ekki djúpt í íslensku \nsamfélagi, þegar á reynir, eins og moskumálið leiddi í ljós. Rannsóknin varpar ljósi á samfélag \nmúslíma á Íslandi, stöðu þess og tengsl við íslenskt þjóðfélag, sem framlag til að bæta \nsamskipti ólíkra hópa á Íslandi.
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062390625
Cites: 147
Cited by: 3
Related to: 10