Work

Upplifun félagsráðgjafa á streitu og kulnun: "Ég var alltaf að hlaupa og ég sjálf var alltaf í síðasta sæti"

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun félagsráðgjafa sem starfa í barnavernd af vinnuaðstæðum og álagsþáttum í starfi sem gætu varpað ljósi á kulnun. Þá var einnig kannað hvort einhverjir hefðu upplifað kulnun og hvernig sú reynsla var. Að lokum var athugað hvort viðmælendur teldu að aðstæður í persónulegu lífi hefði áhrif á álag í starfi og kulnun. Við gerð rannsóknarinnar var reynsla þátttakenda skoðuð og upplifun þeirra af vinnuaðstæðum, álagi, streitu og kulnun. \nRannsóknin er hluti af stærri rannsókn sem fjallar um streitu og kulnun á vinnustöðum félagsráðgjafa. Við framkvæmd rannsóknarinnar voru tekin fjögur rýnihópaviðtöl og voru þátttakendur rannsóknarinnar 29 talsins. Þar sem rannsóknin var hluti af stærri rannsókn voru ekki allir þátttakendur félagsráðgjafar sem starfa eða hafa starfað innan barnaverndar þannig að rannsakandi vann aðeins úr viðtölum sem félagsráðgjafar með reynslu í barnavernd tóku þátt. Alls voru það 13 þátttakendur. Þátttakendurnir voru allir kvenkyns fyrir utan einn karlmann, voru þau á öllum aldri og með fjölbreytta starfsreynslu. Þátttakendurnir voru allir félagsráðgjafar sem buðu sig fram til að taka þátt í rannsókninni en leitað var að félagsráðgjöfum sem vildu tjá sig um streitu og kulnun. \nÍ niðurstöðunum greindust fimm þemu en þau voru persónulegar aðstæður, vinnuaðstæður, reynsla af kulnun, stuðningur og bjargráð. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að flestir í hópnum upplifðu álag í starfi og í einkalífi sem hafði haft áhrif á streitu og kulnun hjá þeim. Viðmælendur rannsóknarinnar nefndu að mismikill stuðningur væri frá yfirmönnum og að auðveldara væri að leita til samstarfsfélaga heldur en yfirmanna. Þá höfðu flestir félagsráðgjafar einhvers konar bjargráð til að nota þegar álag var mikið. Mikilvægt er að rannsaka þetta málefni til að vinnustaðir og starfsfólkið sjálft beini meiri athygli að þessu vandamáli og geti hugsanlega komið í veg fyrir kulnun. \nLykilorð: Félagsráðgjafar, barnavernd, vinnuálag, streita, kulnun
Source: Skemman
Author: Hulda Haraldsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062413468
Cites: 36
Cited by: 1
Related to: 10