Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi rannsakar viðhorf stjórnenda til fjarvinnu og útfærslur af mismunandi vinnu fyrirkomulagi hjá fyrirtækjum. Þegar Covid-19 heimsfaraldurinn skall á var flest starfsfólk í fyrirtækjum skikkað í fjarvinnu. Fjarvinna eða blönduð vinna býður upp á mikið af tækifærum og áhugi stjórnenda og starfsfólks hefur aukist eftir að Covid-19 faraldrinum lauk á Íslandi. Leitast var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: Er viðhorf íslenskra stjórnenda jákvætt gagnvart fjarvinnu og hver er besta útfærsla á fjarvinnu? Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við eigindlega aðferð í formi djúpviðtala. Tekin voru fjögur viðtöl við stjórnendur í fjórum mismunandi fyrirtækjum sem starfa öll í ólíkum atvinnugeirum. \nNiðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að viðhorf stjórnenda til fjarvinnu og blandaðrar vinnu sé frekar jákvætt. Einnig sýndu niðurstöðurnar að besta útfærslan af fjarvinnu sé blönduð vinna. Allir viðmælendurnir voru á þeirri skoðun að sveigjanleiki í vinnu væri mikilvægur þáttur í starfsemi fyrirtækisins til þess að auka ánægju starfsfólks. Stjórnendur voru allir á þeirri skoðun að afköst starfsfólks myndu hvorki aukast né minnka ef þau ynnu í fjarvinnu. Framtíðarsýn viðmælenda gagnvart fjarvinnu var mismunandi, annarsvegar að fyrirkomulagið myndi haldast eins og það er í dag og hinsvegar að fjarvinna eða blönduð vinna myndi aukast á næstu árum. \nLykilorð: Fjarvinna, blönduð vinna, sveigjanleiki vinnu, viðhorf stjórnenda, Covid-19.
Source: Skemman
Authors: Kristjana Þórdís Jónsdóttir, Oddný Ýr Magnúsdóttir
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: remote work, hybrid work, managerial attitudes, COVID-19 pandemic, job satisfaction, employee turnover, employee engagement, organizational commitment, employee well-being, work-life balance, employee feedback, employee recognition, employee benefits, employee autonomy, employee participation, employee empowerment
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062452639
