Work

Uppeldisgildran : um áhrif þess á samskipti við barn að ala það upp

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Ágrip \nViðfangsefni þessarar ritgerðar er reynsla mín af áralangri tilraun minni til uppeldis á barni mínu samkvæmt tilteknum uppeldiskenningum sem ég kynntist í námi mínu í uppeldis- og menntunarfræði í Háskóla Íslands. Markmið mitt er að skoða þær í ljósi þessarar reynslu minnar. Rannsóknarspurning mín er því sú hvaða möguleika ég hef sem foreldri til að ala barn mitt upp beinlínis samkvæmt tiltekinni uppeldiskenningu að eigin vali. \nTil þess að afla svars við spurningunni skilgreini ég þá merkingu sem ég legg í uppeldishugtakið, geri grein fyrir þeirri kenningu sem ég valdi til þess hlutverks að vera leiðarljós mitt og verkfæri í foreldrahlutverkinu, rek reynslusögu mína af beitingu kenningarinnar og skoða kenninguna í ljósi þeirrar reynslu. Niðurstaða mín er sú að jafnvel þótt með rannsóknum megi sjá fylgni á milli mismunandi uppeldishátta og mótunar ólíkra persónuleikaþátta hjá börnum sem þeirra njóta þá er mjög óljóst hvert orsakasambandið í rauninni er og enn óvissara um möguleika foreldra á að beita sem uppeldislegri aðferð þeim uppeldisháttum sem tengdir eru góðum árangri í hegðun, líðan, námi og öðrum þáttum sem velferð barna mælist í.
Source: Skemman
Author: Margrét Garðarsdóttir 1972
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062502023
Cites: 12
Cited by:
Related to: 10