Tengsl Persónuleikagerðar D við lífeðlislega svörun í streituvaldandi aðstæðum
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Hjarta- og æðasjúkdómar (e. cardiovascular disease) eru megindánarorsök víðs vegar um heiminn. Ýmsir áhættuþættir hafa verið bendlaðir við hjarta- og æðasjúkdóma á borð við aldur, kyn erfðir, tóbaksreykingar, hátt kólesteról, háþrýstingur, sykursýki, offita, hreyfingarleysi, streita, áfengi og mataræði. Streita er sálrænn áhættuþáttur sem hefur hlotið mikla athygli og rannsakendur hafa skoðað hvort að ákveðin persónuleikagerð geti skýrt tengslin á milli streitu og hjarta- og æðasjúkdóma. Persónuleikagerð D hefur hlotið aukna athygli í vísindaheiminum en hún einkennist af neikvæðum geðhrifum og félagslegri hömlun. Þeir sem eru Persónuleikagerð D upplifa mikið af neikvæðum tilfinningum en tjá sig ekki um þær. Í þessari rannsókn var athugað hvort Persónuleikagerð D hefði tengsl við lífeðlislega svörun í streituverkefnum. Tilgáturnar voru þrjár; að Persónuleikagerð D myndi sýna dempuð hjartsláttarviðbrögð, að Persónuleikagerð D væri lengur að jafna sig eftir streituverkefni og að Persónuleikagerð D sýndi minni hjartsláttarbreytileika. Þátttakendur voru 56 manns sem svöruðu DS14 spurningalista á netinu og tóku þátt í tveimur streituvaldandi verkefnum þar sem lífeðlisleg viðbrögð voru mæld. Tilgáturnar stóðust ekki. Undirþættir Persónuleikagerðar D voru skoðaðir til að varpa frekari ljósi á niðurstöður.
Source: Skemman
Author: Fjóla Kristín B. Blandon 1993
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Cardiology and Cardiovascular Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062534465
