Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Rannsókn þessi fjallar um líf og upplifanir trans fólks, sem er fólk sem fékk úthlutað kyni við fæðingu sem stangast á við kyngervi þeirra. Kynjatvíhyggja og kynjakerfi litar samfélagsgerð okkar og trans fólk býr við félagslegt misrétti. Megintilgangur rannsóknarinnar er að kanna kynvitund trans fólks, en slík rannsókn hefur ekki verið framkvæmd hérlendis. Rannsóknarspurningar snúa að því hver kynvitund trans fólk sé, hvernig kynjun samfélagsins hefur áhrif á hana, hver upplifun þeirra sé af líkama sínum og hver staða þeirra sé í samfélaginu. Tekin voru viðtöl við 14 trans einstaklinga; 3 trans konur, 3 trans karla og 8 kvár. Rannsóknarniðurstöður voru greindar með þemagreiningu. Niðurstöður sýna fram á að trans kynvitund er fjölbreytt, hún getur ýmist verið upplifuð sem kjarna í sjálfsmynd, sífellda þróun sem hluti af persónulegum þroska eða sem eitthvað óskiljanlegt fyrir mann sjálfan. Kynjuð valdakerfi samfélagsins hafa áhrif á kynvitund og kyntjáningu. Upplifun trans fólks af eigin líkama er einnig fjölbreytt og undir áhrifum viðtekna hugmynda samfélagsins um trans fólk og réttmæta líkama. Jaðarsetning trans fólk hefur djúpstæð áhrif á tilfinningalíf þeirra og viðbrögð þeirra í samfélaginu. Transfemínísk samstaða er mikilvæg til að stuðla að jöfnum tækifærum, virðingu og réttindum fyrir öll.
Source: Skemman
Author: Birta Ósk Hönnudóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062626723
