Útbreiðsla ofþyngdar meðal íslenskra grunnskólanemenda í 6., 8. og 10. bekk. Niðurstöður úr landskönnun árin 2017 og 2018.
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Eitt helsta heilsufarsvandamál sem steðjar að í samfélaginu er ofþyngd barna og unglinga. Ofþyngd barna getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér í formi aukinnar tíðni lífsstílssjúkdóma síðar á ævinni. \nTilgangur þessa verkefnis var að kanna útbreiðslu ofþyngdar meðal íslenskra grunnskólanemenda í 6., 8., og 10. bekk og athuga hvort bakgrunnsþættir í lífi þeirra hafi áhrif á tíðni ofþyngdar. Þær bakgrunnsbreytur sem skoðaðar voru í þessu verkefni voru aldur, kyn, búseta, fjölskyldugerð, þjóðerni og efnahagsstaða. Rannsakað var hver útbreiðslan væri og hvaða bakgrunnsbreyta hafði sterkustu tengslin við tíðni ofþyngdar. \nVerkefnið byggði á landskönnuninni Heilsa og lífskjör skólanema (HBSC) sem var lögð fyrir nemendur skólaárin 2017-2018. Öllum grunnskólum landsins var boðin þátttaka og tók hún eina kennslustund. Spurningalistarnir voru útfylltir á rafrænu formi án þess að hægt væri að rekja svörin. Heimtur í landskönnuninni voru 54,5% og byggist verkefnið á svörum 6.102 íslenskra nemenda en það var sá fjöldi sem skilaði vel útfylltum spurningalista. Notast var við spurningar úr könnuninni sem lýstu hæð og þyngd nemenda til þess að reikna líkamsþyngdarstuðul þeirra. Ofþyngd var því næst tengd við valdar bakgrunnsbreytur. \nHelstu niðurstöður verkefnisins voru þær að tíðni ofþyngdar meðal barna á Íslandi jókst með hækkandi aldri en það var öfugt við niðurstöður flestra annarra Evrópuþjóða. Fjölskyldusamsetning var sú breyta sem hafði mest áhrif á tíðni barna í ofþyngd, en þó sýndu allar bakgrunnsbreyturnar veika fylgni í tengslum við tíðni ofþyngdar. Tíðnin var lægst hjá þeim börnum sem bjuggu hjá báðum kynforeldrum en jókst hjá þeim börnum sem bjuggu hjá einstæðu foreldri, hjá stjúpforeldrum og að lokum var tíðnin hæst hjá þeim sem bjuggu við annað úrræði. Aðrar bakgrunnsbreytur höfðu allar marktæk tengsl við ofþyngd nema breytan þjóðerni. Fleiri drengir voru í ofþyngd heldur en stúlkur og tíðnin var hærri hjá þeim börnum sem bjuggu á landsbyggðinni. Börn sem bjuggu við miðlungs eða háa efnahagsstöðu voru ólíklegri til að vera í ofþyngd heldur en börn sem tilheyrðu lágri efnahagsstöðu. \nÚt frá niðurstöðum könnunarinnar má draga þá ályktun að tíðni barna í ofþyngd sé lægri nú en seinustu ár hafa sýnt. Hugsanlega gæti þetta verið vegna aukinnar vitundarvakningar í samfélaginu um mikilvægi heilbrigs lífstíls og betri forvarna í grunnskólum. Þessar forvarnir eru til að mynda þróunarverkefnið Heilsueflandi grunnskóli en einnig hefur verið lögð áhersla seinustu ár á að efla starf skólahjúkrunarfræðinga með tilliti til heilsueflingar. Tíðni ofþyngdar er mismunandi eftir bakgrunni nemenda og ætti að leggja aukna áherslu á forvarnir meðal barna sem tilheyra þeim hópum.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: childhood overweight, adolescent overweight, prevalence, HBSC study, socioeconomic status, parental education, parental employment, parental income, living with parents, age differences, gender differences, lifestyle-related diseases, health behavior, physical activity, screen time, sleep duration, dietary habits
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062637019
