Work

Úti finna allir leið : útikennsla í þátttökuskólum LÍS verkefnisins tíu árum eftir að það hófst

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Þetta verkefni fjallar um útikennslu. Vorið 2003 var hleypt af stokkunum verkefninu Lesið í skóginn með skólum, (LÍS), að frumkvæði Skógræktar ríkisins og nokkurra samstarfsaðila. Markmiðið var að finna leiðir til að efla þverfaglegt nám um skóga og skógarnytjar í grunnskólum. Verkefnið var unnið í sjö grunnskólum á Íslandi og stóð yfir í þrjú ár. Þessi ritgerð fjallar um áhrif LÍS verkefnisins á starfshætti þátttökuskólanna. Til grundvallar var lögð matsskýrsla Þuríðar Jóhannsdóttur um verkefnið, sem kom út að því loknu árið 2007. \nMarkmið þessarar rannsóknar var tvíþætt. Annars vegar að kanna hvað situr eftir af áhrifum LÍS verkefnisins tíu árum eftir að það hófst og hins vegar að skoða hvernig útikennsla hefur þróast og hvernig hún hefur styrkt aðrar námsgreinar. Í rannsóknarverkefninu var beitt eigindlegri aðferðafræði. Gerð var tvíþætt eigindleg rannsókn sem fór fram árið 2013, annars vegar viðtalsrannsókn og hins vegar vettvangsrannsókn. Í viðtalsrannsókninni voru tekin opin viðtöl við átta kennara úr öllum sjö skólunum sem tóku þátt í LÍS verkefninu. Einnig var gerð vettvangsrannsókn í fimm skólum af sjö. \nNiðurstöður þessa rannsóknarverkefnis bentu til að LÍS verkefnið hafi haft áhrif til eflingar útikennslu í öllum þátttökuskólunum. Útikennsla var ekki lengur eingöngu bundin við skóginn heldur fór fram víða í nágrenni skólanna. Aðstöðu til útikennslu hafði áður verið komið upp en nú er komin aðstaða til ýmiskonar ræktunar og aðgengi að skógarsvæðum hefur batnað umtalsvert. Fram kom í rannsókninni að flestar námsgreinar komu við sögu í útikennslu og var hún talin góð viðbót við aðra kennslu. Hún var talin auka fjölbreytni kennslu og möguleika til samþættingar í námi, styðja bóklegt nám og auka námsáhuga nemenda. Stöðugt var unnið í námsefnisgerð og nýjar hugmyndir komu fram. Viðhorf nærsamfélags til útikennslu var allstaðar mjög jákvætt sem er breyting frá því sem var. \nLykilhugtök: útiskóli, grenndarskógur, skógarnytjar, samþætting námsgreina, hugsmíðahyggja.
Source: Skemman
Author: Ingvar Engilbertsson 1952
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062681889
Cites: 9
Cited by:
Related to: 10