Upplifun og líðan nemenda í atvinnutengdu námi
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Markmið með þessari rannsókn var að kanna hver upplifun nemenda væri af atvinnutengdu námi, en því er ætlað til að koma til móts við nemendur í 9. og 10. bekk sem finna fyrir vanlíðan innan skólans, svo sem vegna námsörðugleika og/eða félagslegrar stöðu. Sjónum var beint að þáttum sem við koma sjálfsmynd, líðan og framtíðarsýn nemendanna. Beitt var eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við sex grunnskólanemendur sem höfðu reynslu af atvinnutengdu námi. Helstu niðurstöður sýna fram á að upplifun þessara nemenda af atvinnutengdu námi er jákvæð. Þeim fannst þeir hafa ákveðnu hlutverki að gegna á vinnustað, leið vel þar og voru sjálfsöruggari eftir að hafa byrjað í náminu. Þá fannst nemendunum það einnig kostur að hafa verið í þessu námi hvað framtíðina varðar, svo sem að velja framhaldsskóla og hvaða námsbraut þeir stefna á. Þessir nemendur upplifðu oft og tíðum vanlíðan innan skólans, áttu við námsörðugleika að stríða. Styrkleikar þeirra fengu því ekki að njóta sín innan veggja skólans. Vonast er til að niðurstöðurnar skili sér í auknum skilningi á þeim nemendum sem standa höllum fæti innan skólakerfisins og úrræðinu Atvinnutengt nám.
Source: Skemman
Author: Rakel Sif Níelsdóttir 1988
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Applied Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062702264
