„Við upplifum þetta svolítið bara eins og það sé verið að fækka kennitölum hjá stofnunum ríkisins"
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Í þessu verkefni er upplifun starfsmanna nýju Hafrannsóknastofnunar á sameiningarferli gömlu Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar skoðuð. Ríkið hefur staðið fyrir mörgum sameiningum síðastliðin ár og því áhugavert fá dýpri sýn á upplifun þeirra starfsmanna sem gengið hafa í gegnum sameiningu. Rannsóknarspurningin er eftirfarandi: Hver er upplifun starfsmanna af sameiningarferlinu? Notast var við eigindlega aðferðarfræði og voru sjö viðtöl tekin við þrjá karla og fjórar konur sem öll starfa á nýju Hafrannsóknastofnun í dag en komu frá bæði gömlu Hafrannsóknastofnun og gömlu Veiðimálastofnun, einn viðmælenda byrjaði sem nýr starfsmaður á sameinuðu stofnuninni. \n\tHelstu niðurstöður sýndu að starfsfólk stofnunarinnar er almennt séð ekki á móti sameiningunni sjálfri en fannst vanta allan faglegan grunn fyrir henni. Þeim fannst sameiningin ekki nauðsynleg þar sem starfsemi stofnananna skarast lítið sem ekkert og skyldu því ekki í hverju ávinningurinn ætti að felast. Einnig voru starfsmenn ekki nógu ánægðir með hvernig staðið var að sameiningarferlinu, þar fannst fólki vanta töluvert upp á alla fagmennsku. Starfsmenn voru ánægðir með samstarfsfólk sitt og hrósuðu því mikið og voru ákveðin í því að vera jákvæð og láta áframhaldandi sameiningarferli ganga betur fyrir sig.
Source: Skemman
Author: Hildur Hlíf Sigurkarlsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Public Administration
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: professional development, employee development, organizational change, organizational learning, employee attitudes, professional competence, organizational culture, organizational communication, organizational leadership, organizational control, change management, organizational change evaluation
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062743293
