Viðhorf, þekking og reynsla ljósmæðra sem starfa á fæðingarvakt Landspítala af vatnsfæðingum. Blandað rannsóknarsnið
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Á síðustu áratugum hefur tíðni vatnsfæðinga farið vaxandi víðsvegar um heiminn sem má meðal annars rekja til aukinnar þekkingar um að vatnsfæðingar og umgjörð þeirra auki líkur á eðlilegri fæðingu. Inngripatíðni í eðlilegt fæðingarferli hefur á sama tíma aukist verulega sem er áskorun fyrir ljósmæður. Ýtir það undir mikilvægi þess að leita allra leiða til að veita konum aukna valmöguleika til að takast á við sína fæðingu. \nMarkmið: Að skoða viðhorf, þekkingu og reynslu ljósmæðra sem starfa á fæðingarvakt Landspítala af vatnsfæðingum. Einnig var skoðað hvernig ljósmæðurnar upplifðu ávinning og áhættu í tengslum við vatnsfæðingar. \nAðferð: Blandað rannsóknarsnið. Rafrænn spurningalisti var lagður fyrir þátttakendur sem innihélt bæði opnar og lokaðar spurningar. Kvótaúrtak var notað og öllum ljósmæðrum sem starfa á fæðingarvakt Landspítala boðin þátttaka. Lýsandi tölfræði var notuð við úrvinnslu gagna og Fishers prófi beitt við samanburð á svörum við lokuðum spurningum, en þemagreining við túlkun á svörum úr opnum spurningum. \nNiðurstöður: Alls tóku 55 ljósmæður þátt sem er 83% svarhlutfall. Í megindlegum gögnum kom fram að meirihluti ljósmæðra (60%) taldi sig hafa góða þekkingu á verklagi um vatnsfæðingar og geta túlkað rannsóknarniðurstöður þeim tengdum en tæp 19% ljósmæðra upplifðu sig ekki hafa nægilega þekkingu. Auk þess svöruðu 20% á hlutlausan hátt. Þær ljósmæður sem töldu sig hafa góða þekkingu voru líklegri til að upplifa sig öruggar þegar konur óskuðu eftir því að fæða í vatni. Allar ljósmæðurnar höfðu tekið á móti barni í vatni og voru viðhorf þeirra almennt jákvæð þegar kom að vatnsfæðingum (90%). Í þemagreiningu eigindlegra gagna voru greind eftirfarandi yfirþemu: 1. Verndarhjúpur fyrir truflun á eðlilegu ferli, 2. Valdeflandi andrúmsloft og mýkri fæðing, 3. Áskoranir í umhverfinu og 4. Að styðja val kvenna - það skiptir mestu máli. Undirþemu voru átta. \nÁlyktanir: Á Landspítala hafa vatnsfæðingar staðið barnshafandi konum til boða síðan árið 2007. Almennt eru ljósmæður jákvæðar gagnvart vatnsfæðingum, en hægt væri að efla þekkingu og færni ljósmæðra til að upplýsa og hvetja konur til að nýta sér betur gagnsemi vatns í fæðingum. Mikilvægt er að bæta aðstæður í kringum vatnsfæðingar og eftirsóknarvert væri að yfirfæra hið jákvæða fæðingarumhverfi vatnsfæðinga yfir á allar fæðingar. \n \n \nLykilorð: Vatnsfæðing, ljósmæður, þekking, viðhorf, ljósmóðurfræðileg nálgun.
Source: Skemman
Author: Klara Jenný Húnfjörð Arnbjörnsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Nutrition and Dietetics
Field: Nursing
Domain: Health Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062800854
