Work

„Þú vilt ekki vera gellan sem er geðveikt full á djamminu“: Upplifun ungs fólks af næturlífi á Íslandi í ljósi áfengisneyslu og kynjaðra valdatengsla

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er reynsla ungs fólks af næturlífi á Íslandi. Megintilgangur rannsóknarinnar var að fá innsýn í næturlífið út frá sjónarhorni þeirra sem taka þátt í því og skoða hvaða hugmyndir liggja að baki reynslu fólks. Niðurstöður eru settar í samhengi við fyrri rannsóknir á næturlífi og femínískar kenningar um kvenleika og karlmennsku, nauðgunarmenningu og kynlífshandrit. Í rannsókninni voru notaðar eigindlegar rannsóknaraðferðir. Tekin voru 14 hálfstöðluð einstaklingsviðtöl við ungt fólk sem átti það sameiginlegt að hafa tekið þátt í næturlífi á Íslandi. Niðurstöður þemagreiningar leiddu í ljós að samfélagshugmyndir um kvenleika og karlmennsku hafa mikil áhrif á reynslu ungs fólks af næturlífi, og hugmyndirnar eru mjög litaðar af kynjuðum tvískinnungi. Þannig gilda ólíkar reglur um hegðun karla og kvenna í næturlífi þar sem samfélagsrými kvenna er mun minna en karla. Þrátt fyrir að upplifa næturlíf sem vettvang skemmtunar og góðra minninga er fólk ekki síður meðvitað um næturlíf sem vettvang áreitni og ofbeldis. Næturlífið er litað af nauðgunarmenningu þar sem konur verða fyrir ítrekaðri kynferðislegri áreitni og búa við undirliggjandi ótta við nauðgun. Af gefinni reynslu hafa konur tekið upp ýmis bjargráð til að takast á við ófyrirsjáanlegar aðstæður næturlífsins og finna aukið öryggi. Niðurstöður benda til þess að kynferðisleg samskipti í næturlífi séu að miklu leyti samkvæmt hefðbundnum kynlífshandritum. Aftur á móti endurstillir áfengi kynlífshandrit og veitir ungu fólki frelsi til að fara út fyrir kynhlutverk sín í hefðbundnum kynlífshandritum. Frelsið er þó takmarkað af hinum kynjaða veruleika sem virðist gegnsýra næturlífið sem og samfélagið allt.
Source: Skemman
Author: Margrét Stella Kaldalóns Sigurðardóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062868380
Cites: 124
Cited by:
Related to: 10