Work

„Það tapar enginn á því að læra táknmál“ : ábyrgð heyrandi foreldra táknmálsbarna

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Þetta lokaverkefni fjallar um máltöku táknmálsbarna, þeirra barna sem nota táknmál að einhverju eða öllu leyti í sínu daglega lífi. Markmið þess er meðal annars að varpa ljósi á mikilvægi þess að eiga sér mál, hvernig börn læra mál, að fá innsýn inn í reynsluheim foreldra táknmálsbarna og opna á umræðu um íslenskt táknmál og málnotendur þess. Rannsóknarspurningar þessa verkefnis eru svohljóðandi: Hvað geta heyrandi foreldrar táknmálsbarna gert til að örva máltöku þeirra? Hver er upplifun foreldra af því að eignast táknmálsbörn? Notast var við eigindlega rannsóknaaðferð, í heildina voru þrjú viðtöl tekin, tvö þeirra við mæður táknmálsbarna og eitt við fagaðila sem sér um fjölskylduráðgjöf og fræðslu fyrir fjölskyldur táknmálsbarna. Helstu niðurstöður rannsóknar voru að lykilatriði við að styðja við máltöku táknmálsbarnanna er að foreldrar þeirra læri táknmál og búa þeim gott málumhverfi. Það að gefa barni grunn í táknmáli getur skipt sköpum fyrir framtíð barnsins. Vonandi er hægt að gera ráð fyrir því að flestir foreldrar vilji geta átt í óhindruðum samskiptum við barn sitt. Því er mikilvægt að málefni táknmálsbarna verði rannsökuð frekar í framtíðinni og aðgangur að fræðslu og þjónustu fyrir þessar fjölskyldur sé greiður.
Source: Skemman
Author: Björk Gísladóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062869529
Cites: 8
Cited by:
Related to: 10