Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Óheilbrigður lífsstíll barna og unglinga fer vaxandi með hverjum deginum og má þar helst nefna hreyfingarleysi og stigvaxandi offitu, sem kemur til vegna aukins skjátíma og óhollara mataræðis hjá börnum og unglingum. Samkvæmt Embætti landlæknis voru hjartasjúkdómar, heila- og æðasjúkdómar, sykursýki, Alzheimers sjúkdómur og nýrnasjúkdómar meðal helstu dánarorsaka Íslendinga á árunum 1996–2014. Hreyfing af einhverju tagi gerir öllum gott og fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á beina fylgni milli aukinnar hreyfingar og almennt meiri lífsánægju. Regluleg hreyfing getur komið í veg fyrir sálfræðilegar raskanir tengdar þunglyndi, aukið hugræna getu, minnkað kvíða og streitu og þar með haft alhliða jákvæð áhrif á líffæri og líkamsstarfsemi. \n \nAlþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með 60 mínútum af hreyfingu af meðalákefð til mikillar ákefðar á hverjum degi fyrir 5–17 ára og með því að fylgja þeim viðhelst heilsa einstaklingsins. Ef börn þjálfa eða hreyfa sig umfram ráðlagða hreyfingu, bætist þrek og þol þeirra. Norræna ráðherranefndin safnaði upplýsingum um heilsuvenjur á Norðurlöndum árið 2011 og höfðu Íslendingar hæsta hlutfall þeirra sem voru yfir kjörþyngd. \n \nHreyfing og næring gegna lykilhlutverkum hjá börnum á meðan þau þroskast og hvort tveggja hefur bein áhrif á þróun beinvaxtar, líkamslögunar og styrkingar ónæmiskerfisins. Rannsóknir sýna að börn af höfuðborgarsvæðinu hreyfðu sig oftar af mikilli ákefð en börn af landsbyggðinni. Um 13% fólks í heimum á við offituvandamál að stríða og um 3,2 milljónir manna láti lífið á hverju ári vegna ónægrar hreyfingar. Skjáfíkn spilar þar inn í en talið er að um 6% einstaklinga í heiminum þjáist af skjáfíkn. Frá 1990 til 2002 varð aukning á hreyfingarleysi og óhóflegri neyslu matar á Íslandi og gosdrykkja þrefaldaðist. \n \nSkóli án aðgreiningar stendur fyrir grunn- eða framhaldsskóla sem kemur til móts við þarfir nemenda, bæði félagslegar og námslegar og hefur að leiðarljósi lýðræði, manngildi og félagslegt réttlæti í starfi sínu fyrir nemendur með sérþarfir. Í skipulögðu íþróttastarfi er ávallt komið til móts við einstaklinginn en til að mæta þörfum hans í skólaíþróttum ættu markmið æfinga að vera mismunandi fyrir getustig þeirra. Þeir sem eru lengra komnir og hafa meiri getu ættu að fá erfiðari markmið en þeir sem eru styttra komnir ættu að fá léttari markmið. Þegar nemendur bæta sig, breytast markmiðin og erfiðleikastigið eykst með hærra getustigi. \n \nLykilorð: íþróttakennsla, skóli án aðgreiningar, skólaíþróttir, hreyfingarleysi, offita, skjáfíkn, næring
Source: Skemman
Author: Stefanía Kristín Valgeirsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: physical activity, child health, adolescents, physical education, elementary school, health promotion, sedentary lifestyle, overweight, obesity, cardiovascular disease, mental health, self-esteem, self-confidence, self-efficacy, self-determination, self-regulation, self-competence, self-acceptance, self-control, self-motivation
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062871905
