Work

Þjálfarar og íþróttakennarar framtíðarinnar : eru fitufordómar á meðal íþróttafræðinema og íþróttafræðinga á Íslandi?

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Rannsóknir sýna að í vestrænum samfélögum eru fitufordómar til staðar á meðal heilbrigðisstarfsfólks, einstaklinga sem starfa við þjálfun og á meðal íþróttafræðinema. Markmið þessarar \nrannsóknar var því að kanna hvort fitufordómar séu til staðar á meðal íþróttafræðinga og íþróttafræðinema á Íslandi og bera saman við viðmiðunarhóp sem samanstendur af sálfræðingum og sálfræðinemum. \nAðferð: Samtals tóku 497 þátt í rannsókninni, 131 (26,4%) íþróttafræðinemi, 116 (23,3%) sálfræðinemar, 60 (12,1%) íþróttafræðingar og 190 (38,2%) sálfræðingar. Af þátttakendum voru 341 kona (68,8%) og 155 karlar (31,2%). Lagðir voru fyrir þrír sjálfsmatskvarðar til að meta viðhorf til feitra (AFA), viðhorf til útlits, \nhreysti og heilsu (MBSRQ) og félagslega yfirráðahyggju (SDO). \nNiðurstöður: Allir hópar sýndu neikvæð viðhorf í garð feitra en íþróttafræði- og sálfræðinemar sýndu neikvæðari viðhorf í garð feitra á öllum undirkvörðum en sálfræðingar (p<0,05). Íþróttafræðingar telja \nfrekar að líkamsþyngd stjórnist af viljastyrk en sálfræðingar (p<0,05). \nEkki var munur á fitufordómum hjá íþróttafræðinemum á fyrsta og þriðja ári. Íþróttafræðinemar voru með meiri félagslega yfirráðahyggju en aðrir hópar (p<0,05). Yngsti aldurshópurinn er haldinn meiri fitufordómum en þeir sem eldri eru (p<0,05). Karlar hafa meiri andúð á \nfeitum og telja frekar að líkamsþyngd stjórnist af viljastyrk (p<0,05). \nKonur eru hins vegar hræddari við að fitna (p<0,05). Munur á hópunum er ekki tilkominn vegna aldurs- né kynjamunar í úrtaki. \nÁlyktun: Íþróttafræðingar og íþróttafræðinemar sýna fitufordóma. Út frá lýðheilsufræðilegum sjónarmiðum skiptir máli að reyna að koma í veg fyrir mismunun og útrýma fitufordómum á meðal íþróttafræðinga. \nSérstaklega vegna tengsla íþróttafræðinga við forvarnarstarf barna í grunnskólum. Einnig þar sem íþróttafræðingar sinna þjálfun á feitum.
Source: Skemman
Author: Anna Berglind Jónsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062904222
Cites: 148
Cited by:
Related to: 10