Work

„Því leikhúsið lokkar“ : hvert er bakland átta áhugaleikfélaga og hlutverk nærsamfélagsins í starfsemi þeirra?

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn er starfsemi átta áhugaleikfélaga á Íslandi rannsökuð með tilliti til baklands þeirra og út frá viðhorfi þeirra viðmælenda sem tóku þátt en á Íslandi starfa tæplega 50 áhugaleikfélög vítt og breitt um landið. Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hver staða áhugaleikfélaga er í íslensku samfélagi, hvernig starfsemi þeirra er háttað og hvað það er í samfélaginu sem skiptir máli fyrir áhugaleikfélög til að þau nái að blómstra. Leikfélögin voru valin með hliðsjón af virkni þeirra innan raða áhugaleikfélaga á Íslandi undanfarin ár en staðsetning þeirra réði einnig að einhverju leyti. Viðmælendur voru valdir með það í huga að þeir hefðu reynslu af stjórnarstörfum innan hreyfingarinnar og notast var við hálfopin viðtöl til að ná sem mestri dýpt í viðtölin. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbendingu um að bakland áhugafélaganna sé nokkuð sterkt og að helsta hlutverk nærsamfélagsins sé að tryggja öruggt húsnæði fyrir starfsemi félaganna svo að sköpunarkrafturinn sem býr í meðlimum félaganna fái notið sín.
Source: Skemman
Author: Fanney Valsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062909430
Cites: 7
Cited by:
Related to: 10