Work

„Það er ekki til neitt sem heitir barn“ Ást í frumbernsku sem þroskafræðilegt gangverk

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni þessarar ritgerðar eru tilfinningaleg tengsl (geðtengsl) milli barns og foreldris/umsjáraðila og hvernig reynsla barns með umönnunaraðilum getur mótað þroska þess og getu til að mynda og viðhalda samböndum alla ævi. Fjallað er um sögu og þróun kenninga um geðtengsl og tengslaröskun, áhrif þeirra á atferli og hegðunarmynstur, og næmni foreldra sem verndandi þátt og forvörn. Fjallað er jafnframt um áhrif vanrækslu og ofbeldis gegn börnum og forspárgildi þessara þátta fyrir heilsu einstaklings auk þeirra mælitækja og flokkunarkerfa sem eru notuð til að meta geðtengsl og tengslaröskun. Tilgangurinn með þessu verkefni er að kynna alþjóðlegar kenningar um þessi mál og skoða með hvaða hætti þær geta tengst meðferðarstarfi félagsráðgjafa og aukið þekkingu hans á því sviði.
Source: Skemman
Author: Jakob Regin Eðvarðsson
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062963789
Cites: 47
Cited by:
Related to: 10