Work

Þróun atvinnuþátttöku á Íslandi 1991-2023: með sérstakri áherslu á atvinnuþátttöku karlmanna

Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Atvinnuþátttaka á Íslandi sýndi samdrátt á tímabilinu 1991–2023, sem getur verið vísbending um breytingar á vinnumarkaði. Þennan samdrátt má rekja til minnkandi atvinnuþátttöku karlmanna, á meðan þátttaka kvenna hefur haldist nánast óbreytt. Á sama tíma voru umfangsmiklar lýðfræðilegar breytingar á Íslandi. Frjósemi kvenna hefur aldrei verið minni síðan mælingar hófust og meðalaldur þjóðarinnar hækkað ört, sem endurspeglar breytta aldurssamsetningu landsins. Innflytjendur hafa komið í auknum mæli til landsins og stuðlað að örvun hagkerfisins. Menntunarstig kvenna hefur tekið miklum breytingum og er einn af lykilþáttum að atvinnuþátttöku kvenna haldist stöðug. Þrátt fyrir að menntun karla hafi einnig aukist með árunum hefur sú aukning verið töluvert hægari í samanburði. Mér fannst gagnlegt að skoða samanburð á þróun atvinnuþátttöku víða um heim. Til að kanna hvort þetta væri hluti af alþjóðlegri leitni var atvinnuþátttaka karlmanna á besta starfsaldri (25-54 ára) skoðuð með gögnum frá OECD. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að víða um heim, þar á meðal á Íslandi, hefur atvinnuþátttaka dregist saman í þessum hópi karlmanna.
Source: Skemman
Author: Páll Minh Phuong Jakobsson
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062975264
Cites: 12
Cited by:
Related to: 10