Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessu 30 eininga lokaverkefni til MS prófs í Mannauðsstjórnun var skoðuð reynsla kvenna sem hafa upplifað einkenni kulnunar. Rannsóknin var unnin með eigindlegum rannsóknaraðferðum. Tekin voru viðtöl við níu konur úr mismunandi starfsstéttum með mismunandi reynslu sem áttu það sameiginlegt að hafa lent í kulnunarástandi og farið í veikindaleyfi í að minnsta kosti mánuð. Þótt skilgreining Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar á kulnun sé að slíkt ástand tengist eingöngu vinnuumhverfi er erfitt að horfa fram hjá þeim fjölda fólks sem upplifir sambærilegt ástand með sambærilegum einkennum og afleiðingum sem ekki er hægt að rekja eingöngu til vinnutengdra þátta. Í rannsókninni var skoðuð kveikjan að vanlíðan viðmælanda, einkennin hjá hverri og einni, upplifun þeirra og bataferlið. Þá var einnig skoðað hvaða þættir tengdir vinnuumhverfinu ýttu undir einkenni hjá konunum og hvaða þættir hefðu mögulega getað komið í veg fyrir slíka líðan. \nLeitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hver er reynsla kvenna sem hafa upplifað einkenni kulnunar? Hvaða þættir ýta undir hættu á kulnun? Hvaða þættir í vinnuumhverfi eru verndandi? \nRannsóknin leiddi í ljós að þrátt fyrir að einkenni kulnunar hjá viðmælendum eigi sér fjölþættar skýringar virtust erfiðar aðstæður í vinnuumhverfi þeirra verða til þess að ýta þeim endanlega fram af brúninni. Þá var athyglisvert hversu gríðarmikil áhrif kulnun eða örmögnun hefur á líf fólks. Það sem konurnar áttu flestar sameiginlegt var sú upplifun að komast ekki að fullu til fyrri heilsu og orku ásamt ótta við að lenda aftur í sambærilegu ástandi. Þessi reynsla var þeim flestum mikið áfall og afleiðingarnar langvarandi. Flestir viðmælendurnir upplifðu mikla skömm og lítinn skilning ýmist af hálfu atvinnurekanda, samstarfsfólks eða eigin fjölskyldu. Allir viðmælendurnir áttu það sameiginlegt að vera duglegir í lífi og vinnu, samviskusamir og gera miklar kröfur til sín. Margar sögðust hafa haft tilhneygingu til kvíða og að upplifa auðveldlega streitu. Rannsakandi telur að þrátt fyrir áföll og erfiðleika í persónulegu lífi hvers og eins geti góðar aðstæður í vinnuumhverfi, fræðsla og jákvæð vinnumenning dregið mjög úr líkum á kulnunarástandi. \n \nLykilorð: Kulnun, örmögnunarröskun, heilsueflandi vinnuumhverfi, seigla, kröfur.
Source: Skemman
Author: Sigríður Hildur Snæbjörnsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063043968
