Work

„Það virðast alltaf vera fleiri stelpur sem eru sterkari en strákar í lestri" : mismunandi námsárangur kynjanna í læsi

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Rannsókn þessi fjallar um reynslu grunnskólakennara á yngsta stigi af kynjamun með tilliti til námsárangurs nemenda, einkum í læsi og hvort um sé að ræða mun að þessu leyti milli kennara í blönduðum eða kynjaskiptum grunnskóla. Rannsóknin var eigindleg viðtalsrannsókn og tekin voru viðtöl við átta grunnskólakennara, fjóra úr blönduðum grunnskólum og fjóra úr kynjaskiptum grunnskólum. Í fræðilega kaflanum er fjallað um kenningar um námsárangur drengja og stúlkna og er þar meðal annars komið inn á líffræðilegar, vitsmunalegar og sálfræðilegar ástæður, áhuga nemenda til læsis, áhrif sjálfstjórnar á nám, kynjaskipta skóla/bekki og kyn kennara. Þá er fjallað um mismunandi færni kynjanna í læsi og íslenska skólakerfið. Einnig er umfjöllun um læsi og þá sérstaklega lestur, ritun og lesskilning sem og Byrjendalæsi og Hjallastefnuna. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að kennararnir upplifa muna á námsárangri stúlkna og drengja í læsi og að stúlkur standi framar en drengir. Þeir finna einnig mun á sjálfstjórn milli kynjanna og að stúlkur hafi betri sjálfstjórn en drengir. Reynsla þeirra er sú að lítill sem enginn munur sé á áhuga og viðhorfi kynjanna til læsis. Einnig að áhugi nemenda til náms skipti mestu máli þegar kemur að læsisnámi þeirra og hlutverk kennara sé að vekja áhuga nemenda á læsi og nota til þess fjölbreyttar kennsluaðferðir. Niðurstöður sýna að helsti munur milli kennaranna í blönduðu og kynjaskiptu skólunum er sá að kennararnir í kynjaskiptu skólunum telja að kynjaskipting nemenda skipti megin máli fyrir nám þeirra og efli það og leiði til þess að kennarar eigi auðveldara með að koma á móts við ólíkar þarfir kynjanna. Kennarar í blönduðu skólunum horfa meira á mismunandi þarfir einstaklinganna og hvernig samsetning bekkjarins er.
Source: Skemman
Author: Rósa Karlsdóttir 1974
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063060212
Cites: 38
Cited by:
Related to: 10