"... Þetta er eiginlega stanslaust samtal": Reynsla stjórnenda í listaskólum af mikilvægi upplýsingamiðlunar
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Samfélag atvinnu á Íslandi hefur þróast hratt og ört með komu tækninnar, einkum í gegnum tímabil heimsfaraldurs sem gjörbreytti samfélaginu í rúm tvö ár. Upplýsingamiðlun hefur einnig þróast á þessum tíma. En hafa kjarnahugmyndir samskipta einnig breyst? Markmið rannsóknarinnar var að skoða upplifun stjórnenda listaskóla á Íslandi af mikilvægi upplýsingamiðlunar. Rannsakandi vonast eftir því að rannsóknin vekji stjórnendur til umhugsunar og mögulega opni hug þeirra fyrir tólinu sem upplýsingamiðlun raunverulega er á vinnustað. Rannsóknarspurningin var: Hver er reynsla stjórnenda í listaskólum á Íslandi af mikilvægi upplýsingamiðlunar? Notast var við eigindlegar rannsóknaraðferðir til að svara rannsóknarspurningunni og studdist rannsakandi við fyrirbærafræðilega aðferðafræði í greiningu gagna. Upplifun og reynsla stjórnendanna var þar í fyrirrúmi og lögð áhersla á það í viðtölum. Tekin voru fimm viðtöl við stjórnendur listaskóla með reynslu af stjórnun. Greining viðtalanna leyddi í ljós fjögur þemu, en þau voru fundir og tækni, aðgengi upplýsinga og hæfilegt magn, félagsleg álitamál og flækjustig, og loks aðlögun stjórnarhátta og traust. \nNiðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að mikilvægi upplýsingamiðlunar sé gríðarlegt og er það stöðugt verkefni sem stjórnendur þurfa að vinna í þar sem umhverfið breytist hratt og nútíma samfélag krefst þess af stjórnendum að þeir beri sig rétt að. Þarna er til mikils að vinna þar sem góð upplýsingamiðlun getur leytt til meira trausts til stofnunar og stjórnanda, meiri stöðugleika fyrir starfsmenn og góðrar þróunar. Greining viðtalanna varpaði ljósi á kjarna (e. Essence) viðfangsefnisins: Mannlegi þátturinn er lykillinn. \n \nLykilhugtök: Upplýsingamiðlun, samskipti, vinnustaðamenning, stjórnendur og leiðtogar.
Source: Skemman
Author: Bríet Davíðsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063093843
