Work

Væntingar íslenskra skipulagsheilda til straumlínustjórnunar

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Straumlínustjórnun (e. lean management) er aðferðarfræði sem á rætur sínar að rekja til framleiðslufyrirtækja og eru mörg verkfæri hennar upp runnin frá öguðu umhverfi japanskra skipulagsheilda. Að undanförnu hafa sífellt fleiri íslenskar skipulagsheildir innleitt þessa aðferðarfræði inn í rekstur sinn. Meginástæða þess er sú að straumlínustjórnun hefur reynst árangursrík leið til að draga úr sóun í verkferlum og stuðla að stöðugum umbótum í rekstri. \nÞessari rannsókn er ætlað að varpa ljósi á það hvort þær væntingar sem skipulagsheildir höfðu við innleiðingu á straumlínustjórnun stóðust og hvort innleiðingin taldist árangursrík. Tekin voru viðtöl við sex stjórnendur íslenskra skipulagsheilda, allar með nokkra ára reynslu af straumlínustjórnun. Leitast var við að gera grein fyrir mati stjórnendanna á árangri út frá innleiðingunni, mælingum á straumlínustjórnun, þátttöku stjórnenda og kostnaði við aðferðina. \nNiðurstöður benda til þess að árangur hafi náðst hjá skipulagsheildum sem innleiða straumlínustjórnun. Viðmælendur bera mikið traust til straumlínustjórnunar og telja breytingar eftir innleiðingu jákvæðar. Hins vegar hefur ekki verið lögð áhersla á að mæla árangur straumlínustjórnunar sérstaklega eða mæla fjárhagslegan ávinning af þeim kostnaði sem fylgir innleiðingu á straumlínustjórnun.
Source: Skemman
Authors: Íris Katrín Barkardóttir 1986, Sæmundur Maríel Gunnarsson 1982
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063142023
Cites: 23
Cited by:
Related to: 10