Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða viðhorf starfsfólks til stjórnunar og forystu á Landspítala og kanna vægi þjónandi forystu, hversu hátt hlutfall starfsfólks á Landspítala upplifir starfsánægju, ásamt því að kanna tengsl starfsánægju og þjónandi forystu á Landspítalanum. Bakgrunnur rannsóknarinnar er hugmyndafræði Robert K. Greenleaf um þjón sem leiðtoga. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar í heilbrigðisþjónustu hér á landi um þjónandi forystu og tengsl við starfsánægju. Um eina stærstu stofnun landsins er að ræða og er rannsóknin því viðbót í þekkingargrunn þjónandi forystu hér á landi. Rannsóknin náði til 265 starfsmanna Landspítalans. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að þjónandi forysta er viðhöfð á Landspítala að mati starfsfólks, en heildarmeðaltal þjónandi forystu á Landspítalanum reyndist vera 4,44 á kvarða frá einum og upp í sex. Heildarmeðaltal starfsánægju var hátt en alls sögðust 90% svarenda vera ánægð í starfi. Marktæk fylgni fannst á milli þjónandi forystu (í heild) og starfsánægju, einnig var marktæk fylgni milli starfsánægju og allra þátta þjónandi forystu fyrir utan undirþáttinn Hugrekki. \n \nLykilorð: Þjónandi forysta, starfsánægja, stjórnun, starfsumhverfi.
Source: Skemman
Author: Þóra Gunnarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063145410
