Þátttaka í peningaspilum og algengi spilavanda meðal leikmanna íslenskra félagsliða í knattspyrnu: Tengsl spilavanda við athyglisbrest með ofvirkni, kvíða og þunglyndi meðal leikmanna
Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Lítið er vitað um þátttöku íþróttafólks í peningaspilum og tíðni hugsanlegs spilavanda í þeim hópi. Í þessari rannsókn var könnuð þátttaka í peningaspilum og algengi spilavanda á meðal leikmanna íslenskra knattspyrnuliða og einnig var lagt mat á tengsl spilavanda við einkenni þunglyndis, kvíða og athyglisbrests með ofvirkni (AMO) í þeirra hópi. Þátttakendur voru 725 leikmenn í meistaraflokkum félagsliða, á aldrinum 18-41 árs (M = 23,2). Meirihluti þátttakenda voru karlkyns (75,4%). Um 66% leikmanna höfðu spilað peningaspil á síðustu 12 mánuðum og tæplega 21% spiluðu vikulega eða oftar. Knattspyrnugetraunir á erlendum vefsíðum voru vinsælasta tegund peningaspila meðal leikmanna en karlar spiluðu meira í nánast öllum gerðum peningaspila en konur. Spilavandi var metinn með Problem Gambling Severity Index (PGSI) og reyndust 3,3% karla og 0,6% kvenna eiga við spilavanda að stríða. Þátttaka í flestum gerðum peningaspila var algengari meðal leikmanna er áttu við nokkurn spilavanda að stríða og var munur milli spilavandahópa áberandi mestur fyrir knattspyrnugetraunir og póker. Enginn munur var á milli spilavandahópa fyrir lottó, flokkahappdrætti og bingó. Nokkur jákvæð fylgni reyndist vera milli spilavanda og kvíða, þunglyndi og AMO. Niðurstöður þrepaskiptrar lógistískrar aðhvarfsgreiningar bentu þó til þess að eftir að stillt var fyrir áhrif kyns reyndist aðeins reglubundin þátttaka í póker, spilakössum og íþróttagetraunum öðrum en knattspyrnu hafa marktæk tengsl við spilavanda. Almennt séð benda niðurstöður rannsóknar til þess að mikilvægt sé að gera leikmönnum íslenskra knattspyrnuliða grein fyrir mögulegum skaðlegum afleiðingum reglubundinnar þátttöku í peningaspilum.
Source: Skemman
Author: Kristján Gunnar Óskarsson 1989
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063191183
