Work

Áhrif óhefðbundins námsmats í stærðfræði á námsárangur og viðhorf nemenda : samanburðarrannsókn gerð í framhaldsskóla

Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var tvíþættur. Kannað var hvort notkun óhefðbundins námsmats hafi áhrif á annars vegar námsárangur nemenda í stærðfræði og hins vegar á viðhorf nemenda til stærðfræðinnar. \nGerð var samanburðarrannsókn á tveimur hópum sem rannsakandi kenndi í framhaldsskóla haustið 2011. Annar hópurinn var tilraunahópur og fékk óhefðbundið námsmat. Lögð var áhersla á leiðsagnarmat sem fólst meðal annars í að meta hópavinnu og vinnu nemenda. Að auki þurftu nemendur að kenna samnemendum sínum afmarkað efni. Hinn hópurinn var samanburðarhópur þar sem hefðbundið námsmat var viðhaft. Báðir hóparnir tóku sama lokapróf. Þrátt fyrir að aðferðir samanburðarrannsóknar hafi aðallega verið notaðar má segja að um blandaða aðferð hafi verið að ræða þar sem gagnaöflun var bæði megindleg og eigindleg. Megindlegi hlutinn snéri að öflun tölulegra gagna eigindlegi hlutinn fólst í huglægu mati á námi nemenda tilraunahópsins auk dagbókarskrifa. Það má segja að um nokkurs konar starfendarannsókn hafi verið að ræða þar sem rannsakandi var þátttakandi í rannsókninni sjálfri. \nÖflun gagna fór fram með ýmsum hætti. Í upphafi annarinnar var lagt fyrir alla nemendur stöðupróf og viðhorfskönnun. Yfir önnina voru ýmis verkefni lögð fyrir og í lok annar var aftur lögð fyrir viðhorfskönnun og niðurstaða á lokaprófi skipaði stóran sess. Að auki hélt rannsakandi dagbók þar sem hann ígrundaði framgang rannsóknarinnar, samskipti sín við nemendur og hugmyndir sem kviknuðu. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýndu ekki mælanlegan mun á árangri nemenda í stærðfræði en munur kom í ljós á hópunum er varðar viðhorf til stærðfræðinnar. Nemendur sem fengu óhefðbundið námsmat voru mun jákvæðari heldur en þeir sem voru í samanburðarhópnum. Þeir urðu öruggari með sig gagnvart stærðfræðinni, sjálfstraust þeirra jókst og viðhorf til greinarinnar batnaði til muna. \nNauðsynlegt er fyrir kennara að vera í sífelldri þróun og endurmeta kennsluhætti sína með það að markmiði að koma á móts við sem flesta nemendur. Þessi rannsókn var framlag rannsakanda til nauðsynlegs endurmats.
Source: Skemman
Author: Þórunn Bergþóra Jónsdóttir 1957
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063816278
Cites: 5
Cited by: 2
Related to: 10