Work

Áhrif ADHD einkenna hjá börnum með ASD á aðlögunarfærni

Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Eldri útgáfur greiningarkerfa þroska- og geðraskana útilokuðu greiningu á ADHD ef að einhverfurófsröskun væri til staðar, þar til að núverandi útgáfa bandaríska flokkunarkerfisins, DSM-5, var gefin út. Í eftirfarandi rannsókn var athugað hver áhrif ADHD einkenna væri á aðlögunarfærni barna með greiningu á einhverfurófi, og hvort fleiri ADHD einkenni hefðu meiri áhrif. Þátttakendur voru 62 börn á aldrinum 13-17 ára sem greindust með einhverfurófsröskun á Greiningar og ráðgjafarstöð ríkisins. Áhrif ADHD á aðlögunarfærni voru metin með aðfallsgreiningu. \nNiðurstöður sýndu að þau börn sem einnig voru með ADHD einkenni mældust með marktækt lægri frammistö!u á kvörðunum boðskipti og félagsleg aðlögun á Vineland Adaptive Behavior Scale en þau sem einungis höfðu einhverfurófsröskun. Eftir því sem ADHD einkennin verða fleiri því meiri skerðing á sér stað í boðskiptum og félagslegri aðlögun. \nþessar niðurstöður benda til þess að ADHD einkennin valdi aukinni skerðingu í aðlögunarfærni og er því nauðsynlegt að greina einkenni ADHD samhliða einhverfurófsröskun svo hægt sé að beita viðunandi meðferð og þar með reyna að bæta þroska og lífsgæði barnsins.
Source: Skemman
Author: Hjálmdís Ólöf Ágústsdóttir 1991
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063844784
Cites: 39
Cited by:
Related to: 10