Áhrif hópþrýstings á ungt fólk : áhrif, áhrifavaldar og hvernig hægt er að takast á við hann : áhrif hópþrýstings á ungt fólk
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Með þessari ritgerð er meginmarkmiðið að skoða það hvernig hópþrýstingur getur haft áhrif á ungt fólk í daglegu lífi þess og hvernig sá þrýstingur getur haft áhrif á áfengisneyslu. Hópþrýstingur er stór þáttur í því að mynda og viðhalda áhættuhegðun, einkum áfengisneyslu, innan félagshópa hjá ungu fólki. Með þessari ritgerð þá leitast ég við að bera kennsl á hvaða áhrif sá þrýstingur getur haft á ungt fólk í daglegu lífi þeirra og hvort það sé eitthvað sem hægt er að breyta og bæta til að stöðva þann þrýsting. Þessi rannsókn byggir á rýnihópaviðtali við ungt fólk á aldrinum 18-20 ára til þess að reyna afla upplýsingar um það hvernig hópþrýstingur getur haft áhrif á ungt fólk. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ungt fólk er líklegra til þess að taka áhættur í leit að nýjungum. Hópþrýstingur getur haft áhrif á fólk á mismunandi stigum lífsins, á unglingsárum getur sá þrýstingur verið sérstaklega áhrifamikill, þar sem einstaklingar reyna að samræma sig við viðmið og væntingar jafninga sinna. Áhrif hópþrýstings getur því aukið líkur á því að ungt fólk taki þátt í ofdrykkju og annarri áhættuhegðun sem getur fylgt áfengisneyslu.
Source: Skemman
Author: Ástrós Eva Guðnadóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063853100
