Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Neyðarverðir starfa á Neyðarlínunni og eru fyrsta viðbragðið þegar neyðartilvik eiga sér stað. Starf þeirra er frábrugðið öðrum störfum og getur verið afar streituvaldandi á tímum. Þau upplifa áföll nánast á hverjum degi í gegnum innhringjendur og geta þróað með sér ýmis streituviðbrögð í kjölfar þeirra. Í þessari ritgerð er skoðað hvaða áfallahjálp er í boði fyrir neyðarverði á Íslandi, Nýja-Sjálandi og Bandaríkjunum. Samanburður er gerður á milli landa og kannað hvaða áfallahjálp er í boði og hver er talin vera áhrifaríkust. Í ljós kom að ekki var mikill munur á áfallahjálp á milli landa, uppbyggingin var svipuð og löndin með svipuð úrræði. Í löndunum þremur er boðið upp á viðrunarfundi eftir alvarleg atvik svo og jafningjastuðning. Ekki er samhljóður meðal rannsakenda um hvað forvarnir eða inngrip er áhrifaríkast en svo virðist sem að viðrunarfundir og jafningjastuðningur skili almennt góðum árangri. Það sem helst skilur á milli innan landanna þriggja er seigluþjálfun sem er í boði í Bandaríkjunum en ekki hinum löndunum tveimur.
Source: Skemman
Author: Linda Björk Jakobsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063893403
