Work

Áhrif núvitundar á grunnskólanemendur á miðstigi

Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Andleg líðan barna og unglinga hefur farið versnandi með árunum. Þar geta margir þættir haft áhrif og ef ekki er hugað að þeim geta afleiðingarnar orðið alvarlegar. Talið er að um eitt af hverjum fimm börnum þurfi á sérfræðiaðstoð að halda vegna alvarlegra andlegra vandamála en einungis hluti þeirra fær þá aðstoð sem þau þurfa. Skólinn er talin vera kjörinn vettvangur fyrir inngrip til að bæta líðan þeirra og hefur núvitund reynst vel í því samhengi. Núvitund getur haft jákvæð áhrif á líðan og félagsfærni, auk þess sem hún getur kennt börnum að verða rólegri og meðvitaðri um það sem er að gerast í kringum þau. \nMarkmið rannsóknarinnar var að skoða áhrif núvitundar á líðan barna á miðstigi í grunnskóla. Börnin fengu átta vikna kennslu í núvitund (n=122) en til samanburðar var notaður annar grunnskóli sem fékk áfram hefðbundna lífsleiknikennslu (n=115). Gerðar voru mælingar fyrir og eftir núvitundarkennslu og mæld voru sjálfsálit, hamingja, gengi í skóla og einkenni þunglyndis og kvíða. Niðurstöðurnar lofuðu góðu en þær sýndu marktæka lækkun á kvíðaeinkennum auk hækkunar á sjálfsáliti og gengi í skóla. Hinsvegar voru niðurstöður á þunglyndi og hamingju ekki marktækar, en þörf er á fleiri rannsóknum hér á landi. \nÍ framtíðarrannsóknum væri gott að notast við stærra úrtak með fleiri grunnskólum eða skipta nemendum tilviljunarkennt í hópa. Núvitund virtist ná vel til barnanna og flest þeirra vildu að kennslan héldi áfram.
Source: Skemman
Authors: Ingibjörg Þuríður Stefánsdóttir 1992, Hrefna Guðmundsdóttir 1990
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7063895659
Cites: 147
Cited by: 2
Related to: 10