Work

Aðgengi jaðarsettra hópa að stafrænni stjórnsýslu

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Undanfarin ár og áratugi hafa opinberar stofnanir á Íslandi unnið að því að innleiða stafræna stjórnsýslu. Jaðarsettir einstaklingar upplifa í flestum tilfellum einhverskonar erfiðleika sem varða aðgengi. Það á við um félagslegt aðgengi, aðgengi að byggingum og rýmum sem og aðgengi að stafrænum lausnum; þar með að stafrænni stjórnsýslu. Þessi meistararitgerð fjallar um það hvernig og hvort hugað er að aðgengi jaðarsettra einstaklinga við innleiðingu stafrænnar stjórnsýslu á Íslandi. Í þessum tilgangi var talað við tvo hópa. Þjónustuþega, sem tilheyra fjórum mismunandi jaðarhópum, og þjónustu-veitendur sem vinna hjá opinberum, þjónustuveitandi stofnunum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að opinberar stofnanir þurfa að gera betur í innleiðingu stafrænnar stjórnsýslu. Huga þarf betur að þörfum jaðarsettra hópa við innleiðingu stafrænna lausna og enn vantar nokkuð upp á að aðgengi að stafrænni stjórnsýslu verði jafnt fyrir öll. Þjónustuveitendur sýna ágætan skilning á stöðunni og hafa vilja til þess að bæta hana. Umbæturnar sem þjónustuþegar vilja sjá varðandi bætt aðgengi að stafrænni stjórnsýslu er mun meiri samhæfing allra opinberra þjónustulausna, meira samráð við notendur frá upphafi verkefna, fjölbreyttari þjónustuleiðir, regluleg markviss kennsla og frekari kynningar. Bæði á þeirri þjónustu sem er í boði og þeim réttindum sem þau geta sótt. Þrátt fyrir að samhljómur sé meðal viðmælenda um að almennt þarfnist aðgengi að stafrænni stjórnsýslu umbóta þá eru þeir frekar ánægðir með Stafrænt Ísland. Stafrænt Ísland þykir vera á góðri leið með að uppfylla kröfur, væntingar og réttindi allra þjónustuþega. Í þessu samhengi var komið inn á það að mögulega felist ákveðin lausn í því að leggja enn meiri áherslu á að opinberar stofnanir sameini þjónustulausnir sínar á veflausn Stafræns Íslands, island.is. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna auk þess að við innleiðingu stafrænnar stjórnsýslu þarf að leggja meiri áherslu á að vinna eftir ferlum sem hafa þann tilgang að tryggja aðgengi fyrir öll. Til þess að byggja upp þess konar ferla er lagt til að opinberar stofnanir starfi eftir aðferðafræði notendamiðaðarar hönnunar.
Source: Skemman
Author: Tinna Eik Rakelardóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7064047440
Cites: 83
Cited by:
Related to: 10