Year: 2008
Type: dissertation
Abstract: Allar spár benda til þess að eldri borgurum muni fjölga til muna á komandi árum. Það er jafnframt stefna íslenskra stjórnvalda að aldraðir geti búið á sínum \neigin heimilum sem lengst, og er það einnig yfirlýst stefna eldri borgara sjálfra. \nÞví er mikilvægt að efla þekkingu á reynslu aldraðra af því að búa heima og hvaða aðstoð og aðstæður þeir telji að þurfi að vera til staðar til þess að svo geti \norðið. Tilgangur þessarar túlkandi fyrirbærafræðilegu rannsóknar var tvíþættur. Í fyrsta lagi að lýsa reynslu eldri borgara, sem búa við minnkaða færni til \nsjálfsumönnunar, af því að búa á eigin heimili. Í öðru lagi að kanna hvaða aðstoð og aðstæður eldri borgarar, sem eru á biðlista eftir hjúkrunarrými og búa heima, \ntelja að þurfi að vera til staðar til að það geti orðið. Fáar rannsóknir af þessu tagi hafa verið gerðar á Íslandi og þess vegna veitir þessi rannsókn auknar \nupplýsingar um ofangreinda þætti. \nRannsóknin var unnin í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. \nÞátttakendur voru átta eldri borgarar, fjórar konur og fjórir karlar sem eru á biðlista eftir hjúkrunarrými og búa heima. Reynsla flestra þátttakenda var á þann \nveg að þeir lifðu fyrir hvern dag en skynja mátti öryggisleysi þátttakenda vegna \nversnandi heilsufarsástands. Allir þátttakendur höfðu legið á sjúkrahúsi í lengri \neða skemmri tíma og óttuðust að verða aftur fyrir slíku áfalli, en flestir höfðu \nsterkan vilja til að búa áfram heima. Öryggisleysi hrjáði tvo þátttakendur vegna \nversnandi heilsu og líf þeirra einkenndist af óreiðu og átökum. Vonuðust þeir til \nað finna fyrir meira öryggi á hjúkrunarheimili. \nAðstoð og aðstæður sem þátttakendur í þessari rannsókn töldu þurfa að \nvera til staðar var greiður aðgangur að opinberri þjónustu svo sem heimahjúkrun, \nfélagsþjónustu, ásamt dagvistun og hvíldarinnlögnum. Flestir þátttakendur nutu \nmikillar aðstoðar fjölskyldna sinna sem var þeim afar mikilvæg. Athygli vakti \nhversu mikil samskiptin voru við fjölskyldurnar og treystu þátttakendur á frekari \naðstoð og samskipti. Einn þátttakandi hafði litla sem enga aðstoð eða samskipti \nvi \nvið fjölskyldu sína og skorti tilfinnanlega þann stuðning. Þátttakendur töldu að \níbúðir og nánasta umhverfi þyrfti að taka mið af þörfum þeirra sem þar búa en \nsérstaka ánægju vakti sú þjónusta og það öryggi sem fylgdi búsetu í \nþjónustuíbúðum. \nHjúkrunarfræðingar í heimahjúkrun eru í lykilstöðu til að meta þá aðstoð \nog aðstæður sem eldri borgarar sem eru á biðlista eftir hjúkrunarrými þarfnast. \nMikilvægt er að veita fjölskyldum þessara einstaklinga enn frekari stuðning og \nsjá til þess að fjölskyldan sé höfð með í ráðum þegar aðstoð og aðstæður eru \nmetnar.
Source: Skemman
Author: Sólborg Sumarliðadóttir 1950
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Life-span and Life-course Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7064170769
