Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Fæðing barns er talinn einn stærsti viðburður í lífi fólks, en þetta er líka viðburður sem getur valdið mikilli streitu. Sú aukna ábyrgð sem fylgir því að verða foreldri, sinna þörfum barnsins og svefnleysi getur valdið mikilli streitu hjá öllum, sérstaklega þeim sem eru með undirliggjandi kvíðaröskun eða fyrri sögu um einkenni kvíða. Kvíði eftir fæðingu er nokkuð algengur og getur haft töluverðar neikvæðar afleiðingar á fjölskylduna sem heild. \nMarkmiðið með þessari fræðilegu samantekt var að skoða og greina hverjar afleiðingar kvíða eftir fæðingu geta orðið, ásamt því að skoða hvernig sé hægt að bæta þjónustu við foreldra með kvíða við aðlögun að foreldrahlutverkinu. Heimildaleit fór fram í eftirfarandi gagnasöfnum; Pubmed, Cinahl, ScienceDirect og Google Scholar. Í fyrstu var notast við ákveðin leitarorð við gagnasöfnun, en síðar við snjóboltaðaferð. Eftir leit komu upp 88 greinar, eftir flokkun og yfirlestur urðu eftir 23 rannsóknir sem voru nýttar í verkefnið ásamt öðrum fræðigreinum. \nNiðurstöður rannsókna eru sammála um að kvíði eftir fæðingu getur haft neikvæð áhrif á parsambandið, barnið, tengslamyndun og brjóstagjöf. Rannsóknir voru einnig sammála um að lykilþáttur í bættri þjónustu við foreldra með kvíða er gott meðferðarsamband við ljósmóður. Helstu úrræði sem komu fram í rannsóknum voru lyfjameðferð og Hugræn atferlismeðferð (HAM). Konur virðast kjósa fremur meðferð sem er án lyfja vegna áhrifa sem lyfin geta haft á barnið. Þar af leiðandi er HAM ákjósanleg meðferð. Niðurstöður sýndu einnig að ljósmæður eru margar óöruggar í umönnun foreldra með geðræn vandamál, eins og kvíða og þunglyndi. Foreldrar vilja aukinn stuðning og skilning frá ljósmæðrum og ljósmæður vilja að sama skapi geta sinnt foreldrum af sjálfsöryggi. Hugræn atferlismeðferð er kjörin meðferð fyrir ljósmæður að læra, því hún bætir þekkingu á kvíða og myndi nýtast í umönnun foreldra. Ljósmæður myndu öðlast meiri skilning á kvíða og foreldrar fengu viðeigandi umönnun sem miðar að því að draga úr kvíða einkennum. \n \nLykilorð: Kvíði, Hugræn atferlismeðferð, foreldrar, sængurlega, ljósmóðir.
Source: Skemman
Author: Petrea A. Ásbjörnsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: parent-infant attachment, postpartum depression, postpartum anxiety, maternal mental health, parenting support, infant crying, parental stress, postpartum depression screening, postpartum depression treatment, postpartum anxiety treatment, social support, parental income, parental employment, parental leave
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7064220375
