Work

Einkenni þjálfunarálags meðal hlaupara á Íslandi. Tengsl við efnaskipti

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Einkenni ofálags og ofþjálfunar eru margvísleg og almennt ekki vel þekkt á meðal íþróttafólks. Undanfarin ár hefur orðið nokkur vitundarvakning í þessum efnum og jafnframt hefur rannsóknum um efnið fjölgað. Greining ofálags og ofþjálfunar getur þó verið erfið og óljós. Margþátta þjálfunarálagskvarðinn (MÞÁK), sem til er í íslenskri þýðingu, hefur reynst vel við að meta þjálfunarálag huglægt meðal þeirra sem stunda íþróttir eða ákafa hreyfingu. Margt er þó enn óljóst um það hvernig hann endurspeglar lífeðlisfræðilega þætti í líkamanum og hvernig á að nota hann til að meta líkur á alvarlegri ofþjálfun. Mikil þörf er á slíkum matstækjum þannig að hægt sé að grípa fyrr inn í hjá einstaklingum sem glíma við slíkt ástand. Því fyrr sem hægt er að grípa inn í, því auðveldara verður að snúa ástandinu við. \nMarkmiðið með þessari rannsókn var að skoða áhrif þjálfunarálags á efnaskipti helstu orkuefna meðal hlaupara á Íslandi og athuga hvort tengsl séu á milli breytinga í efnaskiptunum og skors á MÞÁK. Einnig voru æfingamagn og ákefð æfinga metin. Hópi 20 hlaupara var fylgt eftir yfir fjögurra mánaða rannsóknartímabil og svöruðu þátttakendur MÞÁK spurningalistanum vikulega. Þá voru tekin blóðsýni á fjögurra vikna fresti og þátttakendur svöruðu OSTRC-O spurningalistanum um álagsmeiðsli. Af þeim próteinum sem greind voru í blóðsýnunum voru 16 prótein valin sem höfðu þekkt tengsl við efnaskipti helstu orkuefna líkamans til að skoða í þessu verkefni. \nMarktæk tengsl fundust á milli sex blóðpróteina (adiponectin, afamin, apolipoprotein B-100, clusterin, IGF binding prótein 2 og transthyretin) og skors á MÞÁK en í flestum tilfellum voru tengslin við staka undirþætti kvarðans en ekki heildarskor hans. Einnig fundust marktæk tengsl á milli æfingamagns og magns fimm blóðpróteina (adiponectin, afamin, apolipoprotein A-I, apolipoprotein B-100 og apolipoprotein C-III) sem og á milli æfingamagns og undirþátta MÞÁK. Í flestum tilfellum var jákvæð fylgni á milli skors á MÞÁK og magns blóðpróteina en það var þó ekki algilt. \nÞað er því ályktað að MÞÁK geti nýst til að fá vísbendingar um lífeðlisfræðilegar breytingar og til að meta ástand íþróttafólks og álagið sem það er undir hverju sinni. Þannig gæti listinn haft forvarnagildi ásamt því að vera nytsamlegt greiningartæki til að greina mismunandi stig ofþjálfunar. Ljóst er þó að enn er þörf á frekari rannsóknum um efnið. Gagnagrunnurinn sem fékkst við þessa rannsókn mun nýtast við frekari úrvinnslu og greiningar. Þannig má nýta þær niðurstöður sem hafa fengist nú þegar til að kafa dýpra og meta tengsl MÞÁK við álag og meiðsli enn betur.
Source: Skemman
Author: Lúðvík Már Matthíasson
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7065390904
Cites: 63
Cited by:
Related to: 10