Work

,,Ef ég stend ekki með barninu mínu hver gerir það þá?" : upplifun foreldra af ofbeldi skólastarfsfólks gegn börnum þeirra

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Grunnskólaárin eru mikilvægt þroskaskeið í lífi barna og unglinga og er það hlutverk skólanna að stuðla að frekari menntun og undirbúa þau undir lífið. Í grunnskólum eiga börn að finna fyrir öryggi en það er ekki alltaf raunin. Ofbeldi gegn börnum af hálfu skólastarfsfólks er meira í umræðunni nú en áður. Börn með sérþarfir eru líklegri til þess að verða fyrir einelti af hálfu kennara og samnemenda en önnur börn. Það getur verið átakanlegt fyrir foreldra að verða vitni að þjáningum barna sinna og það getur reynst þeim erfitt að takast á við aðstæður í kjölfar ofbeldis gegn börnum þeirra. Á Íslandi hefur málefnið lítið verið rannsakað og reynsla foreldra í kjölfar ofbeldisins hefur ekki verið skoðuð hingað til. Tilgangur rannsóknarinnar: Að dýpka skilning og þekkingu á reynslu foreldra af ofbeldi skólastarfsfólks gegn börnum þeirra, viðbrögðum þeirra í kjölfar þess og vekja athygli á málefninu. Aðferð: Eigindleg rannsóknaraðferð með fyrirbærafræðilegri nálgun. Gögnum var safnað með viðtölum við þrjá foreldra á aldrinum 30-56 og voru börn tveggja viðmælenda með sérþarfir. Við gagnagreiningu var aðferð Colaizzi notuð til þess að greina viðtöl og upplifun foreldra á viðfangsefninu. Niðurstöður: Viðmælendur upplifðu erfiðar tilfinningar í kjölfar þess að börn þeirra urðu fyrir ofbeldi. ,,Ef ég stend ekki með barninu mínu hver gerir það þá?“ fangar vel upplifun viðmælenda og endurspeglar meginþemu rannsóknarinnar. Viðmælendur reyndu sitt besta við að styðja við barnið sitt í krefjandi aðstæðum. Þeir voru sammála um að þeir fengju ekki alltaf áheyrn frá stofnunum þegar þeir reyndu að tilkynna ofbeldið eða óska eftir hjálp og þeim þótti aðgerðarleysi stofnanna allsráðandi. Ályktun: Upplifun viðmælanda var átakanleg, erfið lífsreynsla í tengslum við ofbeldið gegn börnum þeirra og var líðan þeirra sveiflukennd. Áhugavert væri að skoða nánar hvort að börn með sérþarfir séu líklegri hér á landi til þess að vera fyrir ofbeldi en önnur börn. Þörf er á frekari rannsóknum á algengi á ofbeldi gegn börnum af hálfu skólastarfsfólks sem og langtíma rannsóknum á afleiðingum ofbeldis á börn sem fyrir því verða. Einnig er mikilvægt að skoða betur upplifun foreldra svo hægt sé að styðja við foreldra í þessum sporum. Þörf er á vitundarvakningu í samfélaginu um ofbeldið gegn börnum af hálfu skólastarfsfólks. Lykilorð: Upplifun foreldra, ofbeldi, börn, skólastarfsfólk, sérþarfir.
Source: Skemman
Author: Álfdís Hrefna Þorleifsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7065470548
Cites: 24
Cited by:
Related to: 10