Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á áfallasögu kvenna sem hafa verið heimilislausar og notað vímuefni í æð. Markmið hennar er þar að auki að heyra upplifun kvennanna á því hvernig þær þróuðu með sér vímuefnaröskun með tilliti til áfalla. Jafnframt er leitast eftir upplifun kvennanna á úrræðum og meðferðum við vímuefnavanda og skoðunum þeirra um hvað þarf að bæta til þess að mæta þörfum þeirra. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við sex konur. Þær eiga það sameiginlegt að hafa verið heimilislausar með vímuefnavanda og að eiga áfallasögu að baki. Þegar viðtölin voru tekin voru þrjár þeirra heimilislausar í virkri vímuefnanotkun en þrjár í bata. Konurnar eru frá aldrinum 24-47 ára og eru allar með lögheimili skráð á Reykjavíkursvæðinu. Viðtölin voru tekin í október og nóvember árið 2018. \nNiðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að konurnar áttu það sameiginlegt að finna fyrir vanlíðan, bæði fyrir og eftir áföll og að vera með lágt sjálfsmat. Allar höfðu verið í kringum mikið ofbeldi og verið beittar ofbeldi. Konurnar áttu það sameiginlegt að nota vímuefni til að deyfa vanlíðan sína og greindu flestar frá stjórnleysi frá byrjun. Fordómar og stimplun höfðu mikil áhrif á þær sem endurspeglaðist í sjálfsmynd þeirra. Konurnar voru einróma um að þjónusta við þær þyrfti að vera einstaklingsbundin og til langtíma, hvort sem það væru úrræði eða meðferðir þar sem mikil sjálfsvinna færi fram. Þær töldu þar að auki vera jafn mikilvægt að þær mættu virðingu og skilningi af hálfu þeirra sem standa að þjónustunni þar sem hagur þeirra væri virkilega borinn fyrir brjósti og þeim mætt á jafningjagrundvelli. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að heimilislausar konur með vímuefnavanda og áfallasögu að baki hafa ólíkar þarfir sem þarf að mæta á heildrænan hátt. Þær sýna einnig fram á mikilvægi þess að bæta úrræði og meðferðir til þess að veita konunum þá aðstoð og þjónustu sem þær þurfa ásamt því að bæta viðmót þeirra sem veita þjónustuna. \n \nLykilorð: konur, áföll, vímuefnavandi, heimilisleysi, úrræði, meðferðir.
Source: Skemman
Author: Sif Sigurðardóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7065473366
