Einkenni mála í þjónustu á göngudeild BUGL: Fjölskyldugerð, tilvísunarástæður, fyrri þjónusta o.fl.
Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Megin markmið þessarar rannsóknar var að athuga hvað einkennir þann hóp sem er í þjónustu á göngudeild barna- og unglingageðdeildar Landsspítalans (BUGL). Kannað var hverjar helstu tilvísunarástæður þessara barna voru og hvort að tengsl væru á milli ýmissa breyta og tilvísunarástæðna. Einnig var athugað hvaða starfsstéttir væru að vísa málum á göngudeildina, hvaða þjónustu börnin væru að fá í nærumhverfi sínu og hvort að tengsl væru á milli búsetu barnanna, tilvísenda og þjónustu í nærumhverfi. Til að varpa ljósi á markmið rannsóknarinnar var notast við megindlega aðferðarfræði og upplýsingar um börn og unglinga í þjónustu á göngudeild BUGL voru settar í tölfræðilegt form. Flestar upplýsingar um börnin fengust úr stöðluðum tilvísunareyðublöðum sem oftast fylgja málum sem vísað er á göngudeildina. Úrtak rannsóknarinnar voru öll börn sem samþykkt voru í þjónustu á göngudeild BUGL árið 2012 og voru tilvísanirnar alls 234 talsins. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að flest börn í þjónustu á göngudeild BUGL eru á aldrinu 11-15 ára (57%), kynjahlutfall var tiltölulega jafnt eða 51% strákar á móti 49% stelpna og flest barnanna búa á höfuðborgarsvæðinu (69,7%). Algengasta tilvísunarástæða vegna vanda barns var vegna innhverfs vanda (39,6%) og fundust marktæk tengsl á milli tilvísunarástæðna, kyns og aldurs. Sálfræðingar og læknar voru í meirihluta þeirra starfsstétta sem vísuðu börnum sem bjuggu á landsbyggðinni en geðlæknar og bráðateymi í meirihluta þeirra sem vísuðu börnum sem bjuggu á höfuðborgarsvæðinu. Stærsti hluti allra barna í þjónustu á göngudeild BUGL hlaut þjónustu bæði í ítar- og grunnþjónustu í nærumhverfi sínu (34,4%). Marktækur munur var að finna á hvaða þjónustustig börnin hlutu þjónustu í nærumhverfi og eftir því hvort að börn bjuggu á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni en flest þeirra barna sem bjuggu á landsbyggðinni hlutu einungis þjónustu eða meðferð í grunnþjónustu. \nLykilorð: Geðræn vandkvæði, börn og unglingar, BUGL, tilvísunarástæður, fyrirbyggjandi inngrip, þjónustustig.
Source: Skemman
Author: Arna Arinbjarnardóttir 1986
Language: Icelandic
Topic: Child Welfare and Adoption
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7065497878
