Work

Er kertið þitt að brenna út skólastjóri? : kulnun grunn- og leikskólastjóra

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmiðið með þessari ritgerð var að skoða hvort grunn– og leikskólastjórar á Íslandi upplifi kulnun (e. burnout) í starfi. Fjallað er um hugtakið kulnun og þá þætti sem valda því að einkenni hennar koma fram. Kannað var hvort skólastjórar upplifi persónutengda kulnun, starfstengda kulnun eða kulnun tengda skjólstæðingum sem hjá skólastjórum tengist samstarfi við nemendur, foreldra eða starfsfólk. Skoðað var hvort ákveðnir bakgrunns þættir eins og kyn, aldur, starfsaldur, menntun og starfsandi hefðu áhrif á upplifaða kulnun. \nTil að nálgast rannsóknarspurningarnar var notast við kulnunarmælikvarðann „Copenhagen Burnout Inventory“. Þar sem birtingarform kulnunar er persónubundið var kannað hvort hún birtist á einum, tveimur eða þremur mælikvörðum. Spurningalisti var sendur út með tölvupósti til allra skráðra grunnskólastjóra hjá Skólastjórafélagi Íslands, samtals 165 einstaklinga og leikskólastjóra hjá Félagi stjórnenda leikskóla, samtals 214 einstaklinga. Alls svöruðu um 50% skólastjóra á hvoru skólastigi fyrir sig. \nNiðurstöður rannsóknarinnar benda meðal annars til þess að marktækur munur sé á svörum grunn– og leikskólastjóra þegar kulnunarmælikvarðar og sumar bakgrunnsbreytur eru bornar saman. Persónutengd kulnun greindist hjá 13% grunnskólastjóra og 24% leikskólastjóra, 15% grunnskólastjóra og 28% leikskólastjóra upplifðu kulnun sem tengdist starfi þeirra sem skólastjórar og 16% grunnskólastjóra og 29% leikskólastjóra upplifðu kulnun sem tengdist starfsfólki. Engin kulnun mældist tengd nemendum hjá 79% skólastjóra og 63% upplifðu enga kulnun tengda foreldrum. Enginn marktækur munur var eftir bakgrunni á sumum af kulnunarmælikvörðunum en fylgni var á milli starfsanda og kulnunarmælikvarðanna. \nFara verður varlega í að að alhæfa út frá niðurstöðum rannsóknarinnar en þær eru þó nokkuð mikilvægar fyrir fagstéttina og allra sem koma að skólasamfélaginu. Almennt má túlka niðurstöður þannig að mikilvægt sé að hlúa vel að skólastjórum til að fyrirbyggja kulnun.
Source: Skemman
Author: Gerður Ólína Steinþórsdóttir 1971
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7065618020
Cites: 43
Cited by: 4
Related to: 10