Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Við starfslok eykst frítími einstaklinga sem bæði getur verið blessun eða böl. Eldri borgarar geta þá annað hvort einangrað sig eða farið að sinna gömlum áhugamálum sem aldrei hefur gefist tími til þess að stunda. Markmið þessarar ritgerðar er að skoða hvernig tómstundaiðkun getur dregið úr félagslegri einangrun og einmanaleika eldri borgara eftir starfslok. Það að eldast er óstöðvandi þáttur í lífi okkar sem við getum reynt að undirbúa með margskonar hætti. Fjallað verður um áhrif starfsloka á félagslega einangrun og einmanaleika eldri borgara, kenningar um öldrun og hvernig tómstundaiðkun getur ýtt undir hamingjusamari efri ár. Niðurstöður benda til þess að starfslok séu mjög persónubundin og góður undirbúningur eykur líkur á farsælli öldrun. Við starfslok eru eldri borgarar líklegri en áður til þess að upplifa félagslega einangrun og einmanaleika heldur en áður, það getur leitt til alvarlegs þunglyndis. Tómstundaiðkun sýnir fram á aukna hamingju og lífsgæði (Eygló Rúnarsdóttir, 2017) og eru eldri borgara sem viðhalda góðri virkni á efri árum líklegri til þess að upplifa minni félagslega einangrun og einmanaleika (Segel-Karpas o.fl., 2018).
Source: Skemman
Author: Alexandra Mist Gunnarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7065841154
