Work

Farsælt leikskólastarf án aðgreiningar : mikilvægi þess að styðja við fullgildi barna

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Leikskólastarf sem veitir börnum gæða menntun getur haft langvarandi jákvæð áhrif á nám og þroska allra barna og hefur inngilding (e. inclusion) orðið mikilvægari í takti við sífellt fjölbreyttari barnahópa. Innleiðing og framkvæmd skóla án aðgreiningar (e. inclusive education) hefur þó verið erfiðleikum háð. Í því samhengi hafa stjórnvöld tekið mikilvæg framfaraskref, má þar nefna farsældarlögin svokölluðu og nýja menntastefnu til 2030. Ábyrgð á framfylgd menntastefnu hvílir þó áfram að miklu leyti á herðum starfsfólks skóla. Markmið rannsóknarinnar var að leita vísbendinga um hvernig hægt væri að styðja starfsfólk leikskóla við framkvæmd skóla án aðgreiningar og var rannsóknarspurningin: Hvaða þættir í fari starfsfólks leikskóla, starfsumhverfis þeirra og starfshátta tengjast trú á eigin getu til inngildingar? Félagsnámskenning Bandura nýttist sem kenningarammi með lykilhugtakið trú á eigin getu. Fyrirliggjandi gögn úr starfsmannakönnun leikskóla á vegum Skólapúlsins árin 2020 og 2021 voru greind með marglaga líkani (e. multilevel model). Þátttakendur voru 1722 og náði úrtakið til rúmlega þriðjungs allra leikskóla á Íslandi. Niðurstöður gefa vísbendingar um að áherslubreytingar í starfsháttum leikskóla sem auka fullgildi barna séu lykilþáttur fyrir inngildandi starfshætti í skóla án aðgreiningar. Góð trú starfsfólks á eigin getu til að mæta krefjandi hegðun barna skipti töluverðu máli í starfsumhverfi þeirra leikskóla þar sem trú á eigin getu til inngildingar var almennt lág en skipti minna máli eftir því sem hún mældist hærri. Mikilvægi samstarfs og trúar á eigin getu til að mæta sérþörfum barna var einnig undirstrikað. Fagmenntun og starfsreynsla sýndu veik, neikvæð áhrif og eru þær niðurstöður ræddar með tilliti til erfiðleika við innleiðingu skóla án aðgreiningar sem háð hafa starfsfólki. Niðurstöður rannsóknarinnar veita bæði innlegg í stefnumótun stjórnvalda og gagnast einnig skólastjórnendum til að efla starfsfólk sitt við framfylgd skóla án aðgreiningar. Verður í því samhengi bent á vænlegar breytingar er varðar starfshætti, leikskólakennaranám, símenntun og starfsþróun. \nEfnisorð: skóli án aðgreiningar, inngilding, fullgildi, leikskóli, starfsfólk, trú á eigin getu
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7065856164
Cites: 40
Cited by:
Related to: 10