Framhaldsskólanemendur með kvíða: Hlutverk og sýn náms- og starfsráðgjafa
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvers konar þjónusta stendur framhaldsskólanemendum til boða ef þeir eru að glíma við geðheilsuvanda eins og kvíða og hvernig samstarfi náms- og starfsráðgjafa við aðra fagaðila er háttað. Markmiðið var enn fremur að fá sýn náms- og starfsráðgjafa á persónulegri ráðgjöf og hvers konar úrræði þeir hafa fyrir þessa nemendur. Rannsóknin var eigindleg og tekin voru sex hálfstöðluð viðtöl við náms- og starfsráðgjafa sem vinna í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Öflun gagna fór fram í september 2019 til júní 2020. Helstu niðurstöður gefa til kynna að framhaldsskólar á Íslandi eru að koma til móts við nemendur með kvíða. Það er munur á þjónustu fyrir nemendur á milli skóla en sá munur er ekki mikill. Allir skólarnir eru með stoðþjónustu sem samanstendur af tveimur til þremur náms- og starfsráðgjöfum og svo er misjafnt eftir skólum hvaða aðrir aðilar eru í stoðþjónustunni. Samstarf við aðra fagaðila bæði innan og utan skólanna er gott að mati náms- og starfsráðgjafa og buðu allir framhaldsskólar rannsóknarinnar upp á sálfræðiþjónustu fyrir nemendur skólans á haustönn 2020. Rannsóknin veitir innsýn í störf náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskólum þegar kemur að persónulegri ráðgjöf og telja þeir að mikill tími fari í hana og að þörfin þar hafi aukist. Margir nemendur eru að glíma við kvíða og er félagskvíði algengastur að mati náms- og starfsráðgjafanna. Frammistöðukvíði, frestun og álagskvíði eru líka áberandi hjá nemendum að þeirra mati. Rannsóknin gefur til kynna mikilvægi þess að nemendum sem eru með geðheilsuvanda eins og kvíða standi til boða viðeigandi úrræði og hafa náms- og starfsráðgjafar ýmisleg úrræði þegar koma þarf til móts við nemendur með kvíða.
Source: Skemman
Author: Sesselja Bogadóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7065909049
