Fræðslusjóðir atvinnulífsins tilurð og tilgangur : hver er ávinningurinn af fræðslusjóðum atvinnulífsins fyrir félagsmenn Stéttarfélags Vesturlands?
Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Frá upphafi verkalýðshreyfingarinnar hafa verkalýðsfélög unnið að því að styrkja og styðja við menntun og færni félaga sinna. Frá árinu 2000 hafa fræðslusjóðir verið eitt af þeim verkfærum sem efla samfélagið, atvinnulífið og verkafólk með því að fjölga tækifærum til símenntunar. Í þessari rannsókn voru skoðuð tilurð, tilgangur og nýting fræðslusjóða hjá félagsmönnum Stéttarfélags Vesturlands með það að markmiði að fá innsýn í ávinning félagsmanna af fræðslusjóðunum. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að minna en 10% af félagsmönnum Stéttarfélagsins sækja sér styrki í fræðslusjóðina. Konur nýta sjóðina í meira mæli en karlar en meðaltalsupphæð styrkja var mun hærri hjá körlum sem voru einnig að þiggja hærri meðaltalsupphæð styrkja á landsvísu. Félagsmenn Stéttarfélags Vesturlands nýttu fræðslusjóðina mun oftar til tómstundanáms en á landsvísu og má segja að tómstundastyrkir styrki ekki beinlínis vinnumarkaðinn en mannræktarsjónarmiðið er þó þar til grundvallar og það má ekki vanmeta. \nMælt er með frekari rannsókn á nýtingu fræðslusjóðanna á landsvísu annars vegar og á því hvort fræðslan sem er veitt nýtist verkafólki í atvinnulífinu eða styrki það á einhvern hátt á vinnumarkaði hins vegar.
Source: Skemman
Author: Sjöfn Elísa Albertsdóttir 1974
Language: Icelandic
Subfield: Industrial relations
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7065932985
