Work

Fræðileg úttekt á símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga

Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Til hagræðingar í heilbrigðiskerfinu hefur símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga vaxið og þróast \nsíðustu tvo áratugi víðsvegar um heiminn. Til að skoða þetta hlutverk hjúkrunarfræðinga var \nframkvæmd fræðileg samantekt á símaráðgjöf þeirra, sem var unnin með því markmiði að: 1) \nkanna símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga og aðferðir sem þeir notuðu við ráðgjöfina; 2) skoða \nútkomu skjólstæðinga þeirra með tilliti til ánægju, meðferðarheldni og öryggis; og 3) skoða \nhvaða áhrif símaráðgjöf hefur á heilbrigðiskerfið í ljósi hagræðingar. \nNiðurstöður samantektarinnar sýndu að starf hjúkrunarfræðinga sem starfa við símaráðgjöf \ner ólíkt hinni hefðbundnu hjúkrun og er þá samskiptatækni mikilvægust í árangursríkri \nráðgjöf. Verkferlar eru vinsælir, en staðla ekki endilega ráðgjöfina þar sem hjúkrunarfræðingarnir \nnýta einnig sína faglegu dómgreind við ráðgjöf. Almennt var ánægja skjólstæðinganna \nmikil og meðferðarheldni oftast góð en breytileg eftir ráðgjöf. Rannsóknir sýna ekki afgerandi \nniðurstöður um öryggi símaráðgjafar. Símaráðgjöf eykur hins vegar skilvirka notkun á heilbrigðisþjónustu \nog kostnaðarútreikningar benda til sparnaðar. \nUpplýsingamiðstöð hjúkrunarfræðinga var starfrækt hér á landi til skamms tíma innan \nHeilsugæslunnar, en nú er engin símaráðgjafarmiðstöð hjúkrunarfræðinga til staðar. Nauðsynlegt \ner að rannsaka möguleika símaráðgjafar hér á landi þar sem hún gæti aukið skilvirka notkun á \nheilbrigðiskerfinu.
Source: Skemman
Author: Bryndís Guðmundsdóttir 1983
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7065935817
Cites: 40
Cited by:
Related to: 10