Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar ritgerðar er að skoða fjarvinnu og sveigjanleika starfa út frá sjónarhorni stjórnenda og skipulagsheilda, með áherslu á að skoða hver sé helsti ávinningur og hverjar séu helstu áskoranir vinnufyrirkomulagsins. Einnig vildi rannsakandi skoða forsendur fjarvinnu og hvaða áhrif fyrirkomulagið hefur á rekstur og aðra þætti skipulagsheildarinnar. Þá var leitast við að kanna hvort fjarvinna og sveigjanleiki starfa sé vinnufyrirkomulag framtíðarinnar. Hér er um eigindlega rannsókn að ræða. Tekin voru fjögur hálf-opin viðtöl við stjórnendur skipulagsheilda, þar sem fjarvinna og sveigjanleiki er hluti af vinnufyrirkomulagi. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að svara er eftirfarandi: Er fjarvinna ógn eða tækifæri í rekstri skipulagsheilda?\tFræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar tekur til viðeigandi fræðagrunns, þar sem finna má fræðilega umfjöllun um vinnumarkaðinn, fjarvinnu, sveigjanleika og umhverfi. Einnig er farið yfir helstu þætti innan skipulagsheildarinnar sem breytt vinnufyrirkomulag hefur áhrif á. Fjallað er um fyrri rannsóknir á viðfangsefninu. \t\t\t\t\t\t\t\t\tHelstu niðurstöður gefa til kynna að stjórnendur skipulagsheilda telji fjarvinnu og sveigjanleika vera orðinn hluti af hefðbundnu vinnuumhverfi til framtíðar. Fylgi skipulagsheildir ekki þeirri þróun muni það hafa áhrif á samkeppnishæfni þeirra á vinnumarkaði. Ávinningur af fjarvinnu geti stutt við starfsánægju og stuðlað að bættu jafnvægi vinnu og einkalífs starfsfólks, sem skili sér í auknum afköstum fyrir skipulagsheildina. Það geti þó einnig reynst skipulagheildinni áskorun, þar sem mörkin á milli vinnu og einkalífs verði óskýr sem getur haft neikvæð áhrif á afköst starfsfólks. Fyrirkomulagið skapi nýjar áskoranir fyrir stjórnendur og rekstur skipulagheilda með breyttri stjórnun, menningu og samskiptum við starfsfólk. \n \nLykilhugtök: Fjarvinna, sveigjanlegt starfsumhverfi, rekstur skipulagsheilda, áskoranir, ávinningur.
Source: Skemman
Author: Bryndís Lúðvíksdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: remote work, remote management, future of work, organizational communication, organizational control, organizational innovation, organizational efficiency, organizational effectiveness, organizational adaptability, organizational flexibility, organizational resilience, organizational agility, organizational learning
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066022816
