Work

Geðheilsa og geðheilsuvernd: Nálgun, vinnulag og viðhorf ljósmæðra

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessa verkefnis var tvíþættur. Annars vegar að fræðast um mikilvæga og algenga þætti varðandi andlega vanlíðan kvenna á meðgöngu og draga fram mikilvægi geðheilsuverndar á meðgöngu. Hins vegar að taka viðtöl við ljósmæður í mæðravernd Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til þess að fá innsýn í nálgun þeirra, vinnulag og viðhorf til geðheilsuverndar í mæðraverndinni. Notast var við fræðilega úttekt í fyrri hluta verkefnis og eigindleg viðtöl í seinni hluta þess. \nTekin voru viðtöl við tvær ljósmæður í mæðraverndinni. Viðtölin voru tekin upp og skrifuð niður orð fyrir orð. Tekin voru út helstu atriði viðtalanna og fundust sex þemu sem voru eftirfarandi: Sjálfsagður hluti af mæðravernd, leiðbeiningar hjálpa, að hlusta og lækningamáttur samtalsins, tímaþröng og bið eftir sérfræðihjálp, að komast að orsök og vinna út frá því og að lokum þjálfun í samtalstækni og að þora að spyrja. \nNiðurstöður þessa verkefnis leiddu í ljós alvarleika andlegrar vanlíðunnar á meðgöngu. Að meta andlega líðan á meðgöngu er ekki síður mikilvægt en að meta líkamlega líðan. Andleg vanlíðan á meðgöngu getur haft alvarleg áhrif á heilsu móður og barns og haft neikvæð áhrif á fjölskylduna sem heild. Einnig kom í ljós að þær ljósmæður sem rætt var við höfðu jákvætt viðhorf til geðheilsuverndar, þær upplifðu að hafa úrræði og getu til þess að meta andlega líðan kvenna á meðgöngu en þó fannst þeim að hægt væri að gera betur. Ljósmæðurnar töldu að klínískar leiðbeiningar og vinnuleiðbeingar sem kynntar voru árið 2012, fræðsla, námskeið og vitundarvakning hjálpuðu ljósmæðrum við að finna og sinna þessum konum. Helstu hindranir í geðheilsuvernd voru bið eftir sálfræðihjálp og tímaskortur. Þar að auki fannst þeim mikilvægt að ljósmæður hefðu vald á góðri samtalstækni ásamt því að vera óhræddar við að spyrja um geðheilsu. \n
Source: Skemman
Author: María Sunna Einarsdóttir 1975
Language: Icelandic
Subfield: Health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066239246
Cites: 57
Cited by:
Related to: 10