Hvatning og umbun í starfi hjá hinu opinbera. Er verðlaunað fyrir góða frammistöðu?
Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknar var að kanna hvernig væri verið að hvetja og umbuna starfsfólki hjá hinu opinbera með hugmyndafræði nýskipans í ríkisrekstri að leiðarljósi. Hugmyndafræðin kom fram um miðjan tíunda áratug síðustu aldar og markmiðið var að breyta starfs- og rekstrarumhverfi opinberra stofnana. \nRannsóknarsniðið var eigindlegt og byggir á hálfopnum viðtölum við átta stjórnendur hjá hinu opinbera. Notast var við hentugleikaúrtak við framkvæmd rannsóknarinnar. Ritgerðin skiptist í fræðilegan hluta og rannsóknarhluta. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að allir þeir stjórnendur sem tóku þátt í rannsókninni hvetja og umbuna starfsfólki sínu á einhvern hátt en þó í mismiklum mæli. Stjórnendur voru flestir sammála um að krefjandi verkefni og það að ná árangri myndi hvetja þá sjálfa mest í starfi. Atvinnuöryggi var hvað oftast nefnt sem ein helsta umbun ríkisstarfsmanna. Um helmingur stjórnenda sem tóku þátt í rannsókninni töldu sig ekki hafa svigrúm til að umbuna starfsfólki sínu en þeir stjórnendur sem umbuna hvað mest sögðust skapa sér það svigrúm sjálfir. Stjórnendur hafa mismunandi skoðun á umbun og nokkrir sem tóku þátt í rannsókninni er illa við að umbuna. Nýskipan í ríkisrekstri virðist ekki hafa skilað tilsettum árangri hvað varðar mannauðsmál, því flestir sem tóku þátt í rannsókninni telja að þau hafi setið á hakanum.
Source: Skemman
Author: Sigurborg Þórarinsdóttir 1980
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Public Administration
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066313564
