Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Litþekja augans liggur á milli ljósnema og æðulagi augans. Litþekjufrumurnar gegna því mikilvæga hlutverki að flytja næringarefni frá æðulagi til ljósnema augans og flytja jónir, vatn og úrgangsefnis sömu leið tilbaka. Misræmi í flutningum á vatni yfir litþekjufrumurnar getur leitt til uppsöfnunar á vatni við ljósnema augans í sjónhimnu. Þetta ástand getur auðveldlega valdið niðurbroti sjónhimnunnar og skertra starfsemi hennar en þetta talin vera orsök margra augnsjúkdóma. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á jónastreymi um litþekju augans úr rottum, svínum, nautum og mannavef í sérstökum Ussing hólfum, en aldrei áður í músavef. Rannsóknir hafa sýnt að púrinergir viðtakar fyrir ATP og UTP geta örvað jónaflæði um litþekjuvef. Fram að þessu hafa klórjónagöng á litþekju augans talin vera grunnur fyrir vatns og jóna flutning frá holhlið að blóðhlið í auganu og niðurstöður margra rannsókna hafa gefið til kynna að klórjónagöng séu staðsett á blóðhlið litþekjunnar í auganu \n \nMarkmið: Að rannsaka hversu lífvænleg litþekja í augum músa er í Ussing hólfum, bæði ræktuð og ferskt litþekja. Einnig að öðlast meiri skilning á hlutverki púrinergra viðtaka í stjórnun á jónaflæði í augum músa, og mikilvægi klórjónaganga í nettó jónaflutningi um litþekju í augum músa. Það var einnig markmið þessa verkefnis að skapa þekkingargrunn fyrir rannsóknir á litþekju í (knockout) músamódelum. \n \nAðferðir: Heilbrigðar mýs (C57Bl/6J) voru svæfðar og aflífaðar og litþekjan, ásamt undirliggjandi æðu og hvítu og yfirliggjandi sjónhimnu, var sett í sérhönnuð smágerð þekjulíffæraböð (Ussing-hólf) með 0,031 cm2 flatamál á opi, með loftaða (5%CO2/95%O2) 38°C Krebs lausn á blóðhlið og sjónuhlið þekjunnar. Spennuþvingunartæki var notað til mælinga á nettó jónastraumi yfir litþekjuna (ISC) í µAmp/cm2. Á fimm mínútna fresti fór 1 mV púls í gegnum vefinn til þess að meta viðnám vefjarins (TER) í Ohm*cm2 . Fjöldi músa í tilraunum voru alls 6-8 talsins og hvert efni var í Ussing hólfum í 30 mínútur alls. Niðurstöður eru sýndar sem meðaltal ± SEM. Mat á áhrifum inngripa var gert með pöruðuðu t-testi \n \nNiðurstöðurnar: Litþekjuvefur í augum músa getur lifað í allt að 4-5 klukkustundir í Ussing hólfum og sýnt áhrif við mismunandi efnum. Púrinergir viðtakar (bæði P2X og P2Y) höfðu hamlandi áhrif á klórjónastraum litþekjunnar. P2X og P2Y viðtakar juku viðnám litþekjunnar marktækt. Hindrun klórjónaganga sýndi greinileg hamlandi áhrif á jónaflæði. Almennur klórgangablokker (NPPB) hamlaði jónastrauminn eingöngu á holhlið þar sem hann ætti ekki að hafa nein áhrif, þetta var svo staðfest með áhrifum á kalsíum háðum klórganga hamlara (CaCCinh-A01). CFTR klórganga hindrari jók marktækt en tímabundið jónastrauminn. Viðnámið á litþekjuvefnum jókst marktækt með klórganga hömlurum í öllum tilfellum. \n \nÁlyktanir: Púrinergir viðtakar hafa hamlandi áhrif á klór jóna flutning um litþekjuna og örvandi áhrif á viðnám vefjarins. Klórgöng gegna mikilvægu hlutverki við jónaflutning um litþekju í augum músa og fleiri klórgöng virðast vera á holhlið vefjarins en blóðhlið.
Source: Skemman
Author: Sunna Björg Skarphéðinsdóttir 1988
Language: Icelandic
Subfield: Molecular Biology
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
Funder: Háskóli Íslands
OpenAlex ID: W7066362182
