Work

How perceived support, coping strategies, and interpregnancy interval affect mental health in women with a history of a miscarriage

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Fyrri rannsóknir benda til þess að konur sem eiga sögu um fósturlát séu í aukinni hættu á andlegri vanlíðan á næstu meðgöngu. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvort saga um fósturlát hefði neikvæð áhrif á andlega líðan þungaðra kvenna og hvort félagslegur stuðningur, bjargráð og tími liðinn frá fósturláti spili þar hlutverk. Um 650 konur svöruðu spurningum um fósturlát í klínísku viðtali. Konur með sögu um missi voru bornar saman við þær sem áttu ekki slíka sögu út frá DASS sjálfsmatskvarðanum. Niðurstöður leiddu í ljós að konur með sögu um fósturlát upplifðu fleiri einkenni þunglyndis á 25. og 36. viku, fleiri einkenni kvíða á 16. viku og fleiri einkenni streitu á 25. viku meðgöngu borið saman við konur sem áttu ekki sögu um fósturlát. Það dró ekki úr þunglyndi, kvíða né streitu eftir því sem lengri tími hafði liðið frá fósturláti. Að nota fælnistengd bjargráð (e. avoidant coping) jók þunglyndi, kvíða og streitu kvenna á 16 viku meðgöngu en nálgunartengd bjargráð (e. approach coping) drógu aðeins úr þunglyndi á 16 viku, ekki kvíða né streitu. Rannsóknin undirstrikar þó helst mikilvægi félagslegs stuðnings en það að upplifða mikinn félagslegan stuðning hafði jákvæð áhrif á líðan kvenna með sögu um fósturlát. \nLykilorð: fósturlát, meðganga, félagslegur stuðningur, bjargráð
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066381914
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10