Hjúkrun deyjandi einstaklinga á bráðamóttöku
Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar eykst aðsókn eldri og veikari einstaklinga á bráðamóttöku. Á bráðamóttöku koma einstaklingar á öllum aldri með margvísleg heilsufarsvandamál. Vitað er að fólk deyr á bráðamóttökum um allan heim bæði í bráðum aðstæðum og í aðstæðum þar sem andlát er fyrirsjáanlegt. \nTilgangur: Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar var að skoða hvaða einstaklingar það eru sem deyja á bráðamóttökum, hvers vegna þeir deyja þar og hvort það sé æskilegur staður til að deyja á. Einnig var lögð áhersla á að skoða viðhorf hjúkrunarfræðinga á andlátum og umönnun deyjandi einstaklinga á bráðamóttöku. \nAðferð: Framkvæmd var kerfisbundin fræðileg samantekt úr rannsóknum sem fengnar voru af PubMed og CINAHL með ákveðnum leitarorðum. Sett voru fram inntöku- og útilokunarskilyrði til að afmarka leitina og niðurstöðurnar. Helstu skilyrðin voru að rannsóknirnar væru á ensku eða íslensku og væru frá landi þar sem heilbrigðiskerfið er svipað og á Íslandi. Rannsóknirnar voru frá árunum 2012-2020. \nNiðurstöður: Átta rannsóknir voru valdar sem stóðust inntökuskilyrði. Þar af voru fimm eigindlegar, tvær bæði eigindlegar og megindlegar og ein megindleg spurningalistakönnun. Flestar rannsóknirnar voru um viðhorf og reynslu bráðahjúkrunarfræðinga á andlátum og hjúkrun deyjandi einstaklinga á bráðamóttökum. Meginniðurstöður rannsóknanna voru að aðstæður og umhverfi á bráðamóttöku eru ekki ákjósanleg fyrir deyjandi einstaklinga vegna mikils hraða og erils. Hjúkrunarfræðingar töldu að of mikið álag væri á bráðamóttökum til að geta veitt viðunandi meðferð svo að einstaklingur gæti dáið með reisn. Návist aðstandenda var talin nauðsynleg fyrir árangursríka lífslokameðferð. \nÁlyktun: Hjúkrunarfræðingar voru almennt sammála því að líknarhjúkrun væri mikilvægur hluti starfsins en vegna aðstæðna á bráðamóttökum væru þær ekki ákjósanlegur staður til að veita þá meðferð. Með aukinni fræðslu og mögulega innleiðingu frekari verkferla á bráðamóttöku gæti öryggi og líðan hjúkrunarfræðinga sem og skjólstæðinga orðið betri. Andlát munu halda áfram að eiga sér stað á bráðamóttökum og því gæti verið kostur að hafa aðgengilega hjúkrunarfræðinga sem hafa tíma til að sinna líknarhjúkrun. \nLykilorð: Lífslokameðferð, bráðamóttaka, bráðadeild, líknandi meðferð, andlát, dánarorsakir og dánartíðni.
Source: Skemman
Authors: Svanhildur Leifsdóttir, Sonja Lára AxelsÓlafsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7066394425
